Hehehe ţetta er mjög svo ritskođađ Ragna mín ;)
Ţorrablót og fleiraSandra Björg Stefánsdóttir
Komiði sæl öll sömul,
Nú er Sandra stödd á Kirkjubæjarklaustri, n.t.t. á Geirlandi. Hef nú heyrt ófáar lofræðurnar frá Rannveigu og Villý frá þessum stað og svei mér þá ef það er ekki smá vit í því sem stúlku kindurnar voru að segja
Við Nýheima gengið erum hér að boða fagnaðarerindið, þ.e.a.s. kynna starfsemi Nýheima og þessa miklu og góðu samvinnu sem á sér þar stað.
Í vinnunni er allt kreisí eins og venjulega, vinnudagurinn gæti verið 12-14 tímar ef því væri að skipta en þar sem að ég met geðheilsu mína nokkuð þá reyni ég að vinna amk ekki alla daga vikurnar svo lengi
í gær fór ég á fullt að vinna að umsókn til ferðamálastofu um uppbyggingu ferðamannastaðar. Ég vil kannski ekki deila öllu hér með ykkur á veraldarvefnum en ég get sagt ykkur það að ef ég fæ að ráða þá verður Stokksnesið næsta klifurparadís veraldar...
En að máli málanna... ÞORRABLÓTIÐ...!!! Um síðustu helgi fór ég á mitt fyrsta þorrablót á Höfn... já og eiginlega mitt fyrsta þorrablót þar sem ég þekktir einhvern fjölda fólks og skildi flesta brandarana. Ég skemmti mér svo ótrúlega vel og ég bara gapti fyrst þegar ég gekk í húsið því þetta var svo flott og eiginlega bara allir Hornfirðingar virtust vera saman komnir í íþróttahúsinu. Þemað þetta árið var ABBA og jiii minn eini... BÚNINGARNIR...!!! Stelpurnar voru voða sætar og fínar en karlpeningurinn var hreint út sagt sprenghlægilegur. Veislustjórarnir voru tveir, Jói frændi og Bjössi... Kannski þekkið þið þá ekki öll, sum þekkið annan og sum báða... Þeir eru í stuttu máli sagt alveg eins í vextinum nema annar er svona metri lægri í loftinu en hinn... svo getiði bara skoðað myndirnar þegar þær koma inn á myndasíðuna mína 
Eftir að hafa hámað í sig mat (í mis miklu magni) hófst skemmtidagskráin og hláturinn. Ég er bara nokkuð ánægð með hversu marga brandara ég fattaði, Ragna kom mér af stað með að skilja suma en aðra fattaði ég bara alveg sjálf. Einn brandarann fattaði ég meira að segja langt á undan flestum á borðinu mínu en það segir kannski meira um mig en þau
Eftir hláturinn hófst gráturinn..... neeeeee aldrei. Þá hófst dansinn. KUSK hélt uppi stemmningunni eins og enginn væri morgundagurinn og ég dansaði og dansaði og dansaði við alla sem ég þekkti og þekkti ekki. Þannig á þetta að sjálfsögðu að vera. Reyndar tókum við Palli svo svakalega sveiflu að mér varð hálf bumbult á eftir og þurfti hreinlega að fara út og fá mér frískt loft á eftir...
Eftir því sem leið á kvöldið fóru fleiri að dást að kjólnum sem ég var í, mér fannst hann mjög sætur og keypti mér hann þegar ég var í bænum um jólin. Ein spurði mig meira að segja að því hvort þetta væri einhver hönnunar-kjóll... ég var svo ánægð að ég var ekkert að segja henni að ég borgaði ekki krónu meira en 3.500 krónur fyrir dressið í búð sem er fræg fyrir allt annað en hönnun en ég var ekkert að auglýsa það 
Myndirnar eru komnar inn á netið...
Knús og kossar í bili
Sandy

Þú tekur óhemjumagn af myndum. Réttast væri að ritskoða þetta hjá þér hehe. Snildar skemmtun hjá okkur.
Kveðja Ragna