Mótmćli, Ţorrablót og Partý og coSandra Björg Stefánsdóttir
Verður maður ekki að vera maður með mönnum og spjalla aðeins um þessi mótmæli.Ég sat í gær ásamt Fákaleiru fólkinu og saman fylgdumst við með fréttum og kastljósi, eða reyndar lágum við uppi í rúmi... en það er önnur saga
Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja, þegar ég fór heim í hádegismat í gær hlustaði ég á hann Heiðar Örn frænda minn lýsa aðstæðum við þinghúsið og ég var bara nokkuð ánægð með aðstæður. Ég studdi þessi mótmæli, endilega vera með læti og láta í okkur heyra en alltaf þarf fólk að fara yfir strikið. Hvað eru börn að gera þarna undir lögaldri? afhverju í ósköpunum er 11 ára drengur í fremstu víglínu þegar allt er farið úr böndunum? Afhverju þarf fólk að vera að berja með sleif í hjálma lögreglumanna? Hvað er að græða á því? Heldur fólk virkilega að það komist upp með að berja rúður og nánast brjóta þær, kveikja í og kasta skyri í lögregluna? Ég studdi þetta með heilum hug þegar fólk stóð með potta og pönnur og lúðra fyrir utan Alþingishúsið... En við græðum ekkert á því að fara í stríð við lögregluna, þeir eru bara að vinna sína vinnu... sem þeir fá nota bene lítið sem ekkert borgað fyrir.
Svona í lokin langar mig til að segja að ég er svo ótrúlega stolt af honum Heiðari Erni frænda mínum sem stendur sig svo vel í að lýsa aðstæðum á þinginu. Þegar allt ætlaði um koll að keyra í bankahruninu var hann einn af mínum uppáhalds fréttamönnum og núna aftur í gær við þingið... Ég veit að ég er hlutdræg og rúmlega það

En í öðrum fréttum er það að ég mun að öllum líkindum fara á Egilsstaði í fyrramáli. Á föstudag er ráðstefna um Vatnajökulsþjóðgarð þar í bæ og mér skilst að allir sem eru menn með mönnum séu á leið þangað. Við munum gista í Egilsstaðabýlinu og ég hlakka bara nokkuð mikið til. Reyndar eru veðurguðirnir alls ekki hliðhollir okkur því það eru ekkert nema stormviðvaranir og læti í útvarpinu. Sjáum til hvernig það fer.
á laugardaginn er svo ÞORRABLÓTIÐ....!!!!!!!! Ég hlakka svoooo til.... hef ekki farið á svona stórt þorrablót áður og hvað þá að ég hafi skilið brandarana, einhvetíman verður allt fyrst

Ætti ég kannski að fara yfir fréttir liðinnar vikur fyrst ég er nú komin í ham? Fyrir utan vinnu, fundi, NEED, viðburðastjórnun og umhverfisstefnur er ekki mikið að frétta af Nýheimum. Við Ragna förum í maraþon göngur með Nóa á hverjum degi (nema í gær... því það var kolvitlaust veður, ég varð næstum því úti á milli bílsins og útidyrahurðarinnar í Fákaleirunni) Svo fór ég um helgina upp í stú og spilaði Partý og co með vel völdum einstaklingum. Að sjálfsögðu var eitt stelpu lið og svo tvö Parket lið. Ég viðurkenni það fúslega að mér finnst ekkert gaman að spila nema maður geti svindlað smá... Við Hrefna vorum nú komnar með doktorspróf í því í actionary her í denn. En mér hreinlega blöskraði þarna um helgina. Fyrir ykkur sem ekki vitið um hvað spilið snýst þá á maður að safna "hnetum" í ákveðnum litum. Mismunandi spurningar gefa mismunandi lit á hnetu. Að sjálfsögðu fær maður ekki hnetu nema svara rétt. Allavega þegar við vorum búin að spila í nokkurn tíma þá verður mér litið á hneturnar hjá strákaliðunum. Mér til mikillar furðu voru þeir allt í einu komnir með einhverjar 7-8 hnetur þó svo að þeir hafi í mesta verið búnir að fá 5 spurningar og alls ekki svarað þeim öllum rétt...!!! Það er ekkert gaman að svindla ef það er svona augljóst... Það trúir því enginn að maður sé eitthvað gáfaður ef allir sjá að maður svindlar fram í rauðan dauðan

Jæja gott í bili
Sandra Pandra
Athugasemdir
1
Stjáni McCartney skrifar:
Blablabla.......þetta er bara eitthver misskilningur Sandra mín ég hef ekki hugmynd um það hvernig allar hneturnar voru komnar til okkar....Örugglega Frikka að kenna....HUMM. En verð nú að seigja að þetta eru engin mótmæli lengur, þetta er bara skrílslæti og óeyrðir HATA ÞETTA LIÐ!!! 'Afram Sjálfstæðisflokkurinn !!!!
22. janúar 2009 klukkan 01:42
2
Sandra skrifar:
Það vantar ekki yfirlýsingarnar...!!! Bara HATUR og læti...!!! og Kristján Rúnar Hauksson!!!! SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN...!!! Við þurfum að ræða þetta eitthvað betur áður en lengra er haldið.. ;)
Aumingja Frikka er ALLTAF kennt um allt, ekki nóg með að hann hafi fengið að kenna á því allt kvöldið fyrir að hafa EINU SINNI lesið vitlaust orð í einni spurningunni heldur er honum nú kennt um STÓRFELD svik og pretti... Aumingja kallinn ;)
Og bara svona í lokin þá er ekki ekki á móti mótmælendunum, og ég styð ekki ríkisstjórnina!!! En þessir bjánar sem kasta flugeldum og grjóti í lögreglumenn tala ekki mínu máli..!!! OG HANA NÚ ;)
Aumingja Frikka er ALLTAF kennt um allt, ekki nóg með að hann hafi fengið að kenna á því allt kvöldið fyrir að hafa EINU SINNI lesið vitlaust orð í einni spurningunni heldur er honum nú kennt um STÓRFELD svik og pretti... Aumingja kallinn ;)
Og bara svona í lokin þá er ekki ekki á móti mótmælendunum, og ég styð ekki ríkisstjórnina!!! En þessir bjánar sem kasta flugeldum og grjóti í lögreglumenn tala ekki mínu máli..!!! OG HANA NÚ ;)
22. janúar 2009 klukkan 08:33
3
Stjáni McCartney skrifar:
Okey kannski ekki "hata" en alveg vánkað lið.
það þýðir ekkert að ræða þessi mál neitt, sjáum bara hvernig allt fer til helvítis ef Steingrímur verður kominn við stjórnvölin....þá fyrst verður allt klikkað, þá fer ég að mótmæla.... en annars er ég í fínu skapi,
já hann Frikki er nú ekki við eina fjölina feldur, en lengi lifi Davíð...húrra,húrra....HÚRRA
það þýðir ekkert að ræða þessi mál neitt, sjáum bara hvernig allt fer til helvítis ef Steingrímur verður kominn við stjórnvölin....þá fyrst verður allt klikkað, þá fer ég að mótmæla.... en annars er ég í fínu skapi,
já hann Frikki er nú ekki við eina fjölina feldur, en lengi lifi Davíð...húrra,húrra....HÚRRA
22. janúar 2009 klukkan 15:09
4
Sandra skrifar:
Og ekki viljum við að Stjáni Kjáni fari að mótmæla!!! ;)
22. janúar 2009 klukkan 20:09
