Mætt á HöfnSandra Björg Stefánsdóttir

Gleðilegt nýtt á öll sömul og takk fyrir það gamla.
Ég vona svo sannarlega að þið hafið haft það gott yfir hátíðirnar, þannig var það allavega hjá mér.

Nú er ég aftur mætt í sveitina og byrjuð að vinna af krafti... eða ég veit nú ekki með kraftinn, það er eiginlega of langt að fara í tveggja vikna frí. Allavega gengur eitthvað erfiðlega að snúa sólarhringnum við til baka Smile 
En vegna þess að ég hef ekkert getað farið að sofa á skikkanlegum tíma þá hef ég lesið lifandis ósköp. Sem dæmi þá kláraði ég síðustu Harry Potter bókinni og lauk þar með ævintýrinu sem hófst úti á Krít fyrir einu og hálfu ári síðan. Kannski dæmiði mig sem einhvern krakka-bjálfa en ég held þó ekki því það eru bara alveg ótrúlega margir sem hafa lesið allar bækurnar. Síðustu bækurnar eru líka svo fullorðinslegar og dimmar og margt að gerast en samt svo dæmalaust fyndnar. Ég skellti allavega oft uppúr upphátt þó svo að Voldemort væri alveg að ná Harry og heimurinn væri að farast.

Ég fékk líka bókina hans Arnardar um jólin, Myrká. Í fyrsta sinn hef ég orðið fyrir vonbrigðum með bók eftir hann. Vissulega eru þær misjafnar og ekki allar meistaraverk en mér hefur aldrei fundist leiðinlegt að lesa hann. Núna þurfti ég samt oft að einbeita mér að því að fara að lesa. Bókin er skrifuð út frá Elínborgu og Erlendur kemur ekkert við sögu. Rúmlega helmingur bókarinnar fjallar því um matreiðsluáhuga hennar og samskipti við börnin, sem í sjálfu sér væri alveg hægt að gera áhugavert en Arnaldi tekst það samt einhvern veginn ekki. Ég er með kenningu. Arnaldur er með einhvern samning við útgáfu þar sem stendur að hann verði að gefa út bók fyrir hver jól. Hann er með stóra bók í deiglunni en hún var samt ekki tilbúin fyrir þessi jól heldur á að koma út 2010. Þess vegna varð hann að gjöra svo vel og skrifa eitthvað á blað núna til að standa við samninginn. Auðvitað hef ég ekkert fyrir mér í þessu en þetta fékk ég samt á tilfinninguna Cool 

Framundan er þorrablót Hafnarbúa sem haldið verður 24. janúar. Mér skilst að maður sé alls ekki maður með mönnum nema mæta. Eru ekki einhverjir sem hafa áhuga á að koma og panta gistingu á Dalbraut 8... Hafiði bara samband við hótelsstjórann sem allra fyrst Wink 

Já og myndir frá Gamlárskvöldi eru komnar inn á myndasíðuna (já ég var lasin og því ótrúlega mikið klædd miða við alla aðra Cool)

Óver and out
Sandra

Athugasemdir

1
solla skrifar:
hæ sæta!

jeijj ótrúlega skemmtilegar myndirnar frá áramótunum...já svo svaðalegt partýfólk þarna á ferð greinilega!! en já okkur til varnar vorum við BÁÐAR bunar að vera með hita og lasnar,,,svo thumbs up for us :D

Vonandi hefuru það sem best skvís og orðin frísk :)
Heyrumst
Kv, Solla
08. janúar 2009 klukkan 23:32
2
Guðrún Ásdís skrifar:
Blessuð Sandra og gleðilegt árið!

Við Tjörvi ætlum sko að skella okkur í fjörðinn fagra á blót, og í þetta skiptið barnlaus (verið að venja orminn af brjósti;)) - svo að við sjáumst þá..
Var að reyna að draga Sigrúnu en það gekk hálf illa, en vonandi mæta þau nú á ballið.. þú pressir aðeins á hana fyrir mig:o) hehe

kveðja úr stórborginni (heimþráarkveðjur!)
12. janúar 2009 klukkan 00:25
3
Sandra skrifar:
Hehehe þetta er allt í vinnslu... Sigrún Inga mun ekki fá frið fyrr en hún samþykkir að koma ;)
13. janúar 2009 klukkan 14:29
4
Sigrún Inga skrifar:
Þið segið nokkuð. Ég skal ekki lofa að mér verði haggað en ég skal heldur ekki beita orðinu sem byrjar á "a" og endar á "ldrei". Ég mun sum sé melta þetta allt saman.
13. janúar 2009 klukkan 14:33
5
Guðrún Ásdís skrifar:
Er ánægð að heyra það ;) Það eru amk. meiri líkur á að við náum Tjörva alfarið austur ef þú mætir (*hóst*.. engin hótun hihi)
14. janúar 2009 klukkan 17:58

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Staður: Höfn Hornafirði
  • Atvinna: Verkefnastjóri við Háskólasetrið í Hornafirði

Innskráningar kubbur