Jól og áramótSandra Björg Stefánsdóttir
Komiði öll sælog blessuð nær og fjær.Nú eru jólin að verða búin og bara nokkrar mínútur (klukkutímar) í áramótaskaupið og flugeldana og þá hlakkar Söndru Björgu til

Það sem á daga mína hefur drifið er heilmargt. Á þorláksmessu hringdi hann Þorri (yfirmaðurinn minn) í mig og sagði að það liti allt út fyrir að ríkisstjórnin væri búin að sjá ljósið og rekstri Háskólasetursins væri borgið. Að sjálfsögðu verður skorið niður en engu að síður fáum við nóg fjármagn til að halda því opnu. Afskaplega góðar fréttir svona rétt fyrir jólin.´
Aðfangadagur gekk í garð og ég fékk margar fallegar jólagjafir, bækur, hnífasett, Georg Forman grillið, hálsmen, kertastjaka, geisladiska og síðast en ekki síst slökkviliðs-dagatalið þar sem slökkviliðs menn Reykjavíkur eru léttklæddir ámyndum. Já hún Sólveig þekkir systur sína og áhuga minn á fallegum karlmönnum
Hann Hafþór fékk eina mjög skemmtilega jólagjöf, þyrlu sem á að vera hægt að fljúga innanhúss, fjarstýring og alles. Nema hvað gripurinn vildi ekki upp heldur hringsnérist bara á stofugólfinu vði ámælda gleði okkar systra. Haffi bar sig vel en var auðvitað drullufúll meðan við systur grétum úr hlátri. Það eru komnar fullt af myndum inn á myndasíðuna mína, eins eru myndir af ofur-hjórhjóla-skónum sem gömlu gáfu hvort öðru í jólagjöf. Alveg þess virði að skoða myndir af því 
Á jóladag komu börnin hans Þorbjörns og barnabörn í hangikjöts-jólaboð þar sem allir borðuðu á sig gat hvort sem þeir væru á fyrsta ári eða sextugs aldri.
Fyrir utan blessuð jólaboðin hef ég hitt vinina og klifrað eins og mest ég má. Örn er duglegur að peppa mig upp þegar ég hryn í gólfið endalaust og meira að segja Solla kom með í eitt skiptið. Hún stóð sig eins og hetja og hver veit nema hún komi bara með aftur einhvetíman.
Áka bauð okkur "gömlu" vinunum í innfluttningspartý á laugardaginn þar sem margir útlendinganna mættu ásamt okkur hinum. Útlendingarnir Simmi, Hrönn og Jónas og Elísabet ráku inn nefið en Ingvar og Hjördís komust ekki. Enda teljast þau varla sem útlendingar heldur bara tveggja barna foreldrar
Það var ólýsanlega gaman að hitta allt liðið aftur, mikið hlegið af endalaustum aulahúmor eins og í gamle dage. Myndir inn á myndasíðunni að sjálfsögðu.Hrefna og Sæmi buðu mér svo í mat í fyrrakvöld í Njarðvíkinni. Þau eru með STÓRT jólatré... bara hafa það á hreinu! Hrefna eldaði rosa góða purusteik og bauð upp á heimalagaðan ís á eftir. Alvöru húsmóðir á ferð. Aníta Ósk er orðin svo þroskuð og mikil himnalengja að mér brá þegar ég sá hana. Mér finnst ég ekki hafa elst um mínútu síðan ég brunaði upp á fæðingadeild til að sjá hana í fyrsta sinn. Ég hitti líka hann Óðinn Örn í þessu matarboði. Kátara barn hef ég nú sjaldan séð, hann var bara alltaf hlæjandi og alveg til í að leika við Söndru frænku þó hann hefði bara séð mig einu sinni á fæðingardeildinni áður.
Í kvöld verður svo allt barna og barnabarna stóðið í mat í Álfatúni 35. Nema Solla og Haffi sem borða hjá mömmu Haffa en koma svo í Álfatúnið til að horfa á flugeldana, enda varla annað hægt. Boðið verður upp á kalkún en fuglinn er svo stór að hann tekur hálft borðstofuborðið... smá ýkjur í tilefni dagsins en grínlaust þá er þetta einhver tröllafugl og ég held að Alexander Mána hafi ekki staðið á sama þegar hann sá hann þyðna á eldhúsborðinu í fyrradag.
Jæja þetta er nóg í bili, endilega skoðiði myndirnar mínar og hafiði það svo sem allra best í kvöld

Sandy Dandy

Sjáumst í kvöld sæta.
Þín Solla