Reykjavík og jólafríSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá er ég komin í Álfatúnið í jólafrí. Alltaf gott að koma heim þó svo að appelsínugula herbergið sé alveg galtómt. Ég get nú engum öðrum en sjálfri mér þar um kennt þar sem það var ég sem tók upp á því að flytja austur á Höfn með allt mitt hafurtask
Annars fékk ég ekki góðar fréttir með mér í jólafríið. Það er hugsanlegt að ríkistjórnin skeri á öll framlög til háskólasetursins sem þýðir bara eitt... atvinnuleysi fyrir Söndru. Það var því ánægjulegt að frétta af því að fjárlaganefnd skilaði inn tillögu um fjárlögin í dag og þar kemur fram að þau vilja auka framlög til nokkurra háskólasetra, þ.á.m. setursins á Höfn. Vissulega er leiðinlegt að hugsanlega verður að leggja niður sum setur á landsbyggðinni en ef ég hugsa út frá sjálfri mér þá þýðir þetta að vinnan mín er örugg út næsta ár. Eins og ég sagði er þetta bara tillaga frá fjárlaganefnd en fjárlögin verða svo afgreidd á morgun. Það þýðir því ekkert annað en að krossleggja fingur og vona að þetta rætist.
Annars er ég ekki búin að gera margt síðan ég kom í bæinn, sofa og sofa aðeins meira... hausinn á mér var á einhverju sýrutrippi síðustu dagana á Höfn þannig að kannski var full þörf á þessum svefni
Skemmtilegast af öllu var samt að ég hitti Örn í gær og við fórum í KLIFURHÚSIÐ...!!!! Jeijjjj... Við skulum ekkert ræða um ástand vöðvanna minna í dag... Ég var bara nokkuð sátt við hvað ég afrekaði í gær. Ekki það að þolið hafi verið mikið, náði samt að klára ansi margar leiðir í fyrstu tilraun en þegar ég fór að detta þá var orkan líka alveg búin og ekki í umræðunni að gera meira. En það er allt í lagi því við förum bara aftur á morgun 
Í gær fórum við Drífa í jólabíóið okkar. Sáum Four Christmases... svo kíktum við á ljótu-jólaskrauts-rúnt. Árið í ár virðist vera nokkuð gott, krppan virðist halda aftur af hörmungunum. Það verður þó að viðurkennast að nokkur hús í Kópavoginu voru einstaklega ósmekkleg... vægt til orða tekið...!!!
Núna á eftir ætla ég svo að hitta Skinkurnar... eintóm hamingja...
Jæja gott í bili
Sandra
Athugasemdir
1
solla skrifar:
sandra mín jólamyndirnar eru læstar :(
30. desember 2008 klukkan 21:03
