vá jólastemmningin!! ég er bara ein heima að læra...mátt alveg smita mig af smá jólahjóla skapi :)
Góða skemmtun um helgina
-Solla
Frostrósir- Jólakrans- LaufabrauđSandra Björg Stefánsdóttir
Nú eru jólin mætt í Hornafjörðinn, loksins loksins loksins kominn snjór
Reyndar er ekkert á kafi, enginn Hjaltadalssnjór en nóg til að lýsa upp skammdegið. Margir eru líka búnir að setja upp jólaseríur og aðventuljós svo nú hlusta ég bara á létt-jóla-bylgjuna daginn út og inn og syng mig hása. Síðasta mánudag bjó ég til minn fyrsta aðventukrans. Mamma lét mig fá hring og gertastjaka þegar ég var í bænum þannig að ég hafði enga afsökun fyrir því að gera ekki krans. Reyndar langaði mig mjög mikið til að fá grenilykt í litlu íbúðina mína þannig að ég lagði mig ekkert fram við að leita að afsökun. Ég er að sjálfsögðu búin að taka mynd af kransinum en hef því miður ekki haft tíma til að setja þær inn í tölvuna svo þið verðið bara að bíða spennt... Kransinn er mjög einfaldur og lítið skraut á honum... en nákvæmlega þannig vildi ég hafa hann þannig að ég er ánægð

Í vinnunni stóðum við fyrir samkeppni um einkennismerki fyrir NEED verkefnið en það snýst um umhverfið og jarðfræði eins og ég hef sjálfsagt allt of oft sagt ykkur. Þátttakendur í könnuninni voru börn á aldrinum 11-15 ára og ég verð bara að viðurkenna að það kemur mér mjög svo á óvart hvað þessu litlu grey hafa mikla þekkingu á jarðfræði, myndirnar eru margar alveg hreint frábærar. Nú fer allur tíminn minn í vinnu í að skanna þær inn og senda út til alþjóðlegu dómnefndarinnar. Að sjálfsögðu gerum við ráð fyrir að ísland vinni þessa keppni.... ÍSLAND BEST Í HEIMI!!! Í vinnslu er heimasíðan www.need.is og enginn annar en aðal maðurinn er að hanna hana fyrir okkur, Heiðar Sigurðsson... Þó hún sé ekki alveg fullkláruð þá getið þið kíkt á hana og skoðað um hvað verkefnið fjallar, markhópa, samstarfsaðila og svona... þ.e.a.s. ef þið hafið áhuga á því

Hvað haldiði að ég sé að fara að gera á morgun??? Ég er að fara á FROSTRÓSATÓNLEIKA!!! Ég hlakka svooo til, mig hefur alltaf langað, svo í fyrra bauð Þorbjörn okkur mömmu, Sollu og Sædísi á tónleika í Laugardalshöllinni. Þá hét ég því að ég myndi alltaf fara á tónleika ef ég mögulega gæti. Þær eru svo frábærar söngkonur og þetta er svo hátíðlegt...
Á laugardaginn er jólamarkaður í Nýheimum og jólahlaðborða á Hótel Höfn um kvöldið fyrir starfsmenn Nýheima. Á sunnudaginn fer ég svo með Fákaleiru-fjölskyldunni í laufabrauðs gerð.
Já jólin eru svo sannarlega að koma á Höfn í Hornafirði

Bless í bili Sandra
Athugasemdir
3
Nanna skrifar:
Sæl sæta mín:) Já ég vildi að ég hefði getað mætt á frostrósirnar.. :( Hehe..
08. desember 2008 klukkan 12:02
4
Grinch skrifar:
".. ég haaaata strumpa!"
:)
:)
10. desember 2008 klukkan 23:29
5
solla skrifar:
hæ sæta
skemmtilegar nýju myndirnar....heppni að ég sá þær því þær koma neðst!! var að leita að jólamyndum frá 2006 og fyrir slysni sá ég nýju myndirnar.
En vá hvað það er jólalegt og fallegt hjá þér elsku sandra mín.....bara flottara en hjá mér :)
knúsar
Solla
skemmtilegar nýju myndirnar....heppni að ég sá þær því þær koma neðst!! var að leita að jólamyndum frá 2006 og fyrir slysni sá ég nýju myndirnar.
En vá hvað það er jólalegt og fallegt hjá þér elsku sandra mín.....bara flottara en hjá mér :)
knúsar
Solla
11. desember 2008 klukkan 23:31
6
Sandra skrifar:
Hehe myndirnar voru neðstar því það átti enginn að skoða þær strax... ;)
En nú eru þær tilbúnar og ég er búin að færa þær efst..
knúúús Sandra
En nú eru þær tilbúnar og ég er búin að færa þær efst..
knúúús Sandra
12. desember 2008 klukkan 09:12

Kv Ragna