Sumarbústađur í SkorradalSandra Björg Stefánsdóttir

Hæ hæ,
datt í hug að henda hér inn stuttri færslu af því að það er svo ógurlega langt síðan ég skrifaði síðast Cool
Um síðustu helgi dreif ég mig til stórborgarinnar á suð-vestur horni landsins. Þannig var að á Grand Hótel var haldin Ferðamálaþing og að sjálfsögðu fara allir þangað sem vettlingi geta valdið. Erindin voru svo sem óttarlegar lofræður þar sem fólk dáðist af sjálfum sér og sínum afrekum en það er held ég alltaf þannig á svona þingum. Enda snýst þetta í sjálfu sér ekki um að hlusta á fyrirlestra, þetta snýst um að hitta fólk sem ég svo sannarlega gerði. Mér fannst alveg ótrúlega gaman að hitta allt þetta Hólafólk, og ekki skemmdi fyrir að þetta var sennilega í fyrsta skipti sem ég fer á svona þing og þekki mun fleiri en bara Hólafólk. Hver segir svo að það borgi sig ekki að standa í því að halda ráðstefnum... Ætli það hafi nokkur verið svo vitlaus að halda því fram Wink
Þingið var sum sé haldið á fimmtudaginn en á föstudaginn hélt ég beina leið í bústað með mömmu og Þorbirni. Hann var í Skorradalnum og hefur verið annað heimili Þorbjörns í vetur þegar hann er úti á landi að vinna. Á föstudeginum mættum við mamma, Þorbjörn, Sædís og Ólöf og svo allur barnaskarinn. Þetta fór nú bara alveg ótrúlega vel fram allt saman. Á laugardagskvöldið komu svo Solla, Haffi, Sveinn og Þórdís. Við Sædís voru sérstaklega duglegar að ferðast á fjórhjólinu sem var nýtt fram í rauðan dauðann þessa helgina. Á föstudeginum fórum við bara stuttar ferðir enda orðið dimmt snemma en á laugardeginum... þá var sko tekið á því... Fórum í tvo laaaanga túra sem báðir tóku nokkra klukkutíma. Fyrst ætluðum við að fara hringinn í kring um vatnið þarna við bústaðinn en þegar við vorum konar leeeeengst hinumegin áttuðum viðokkur á því að við kæmust ekki alla leið og snérum við. Þess vegna var ekkert annað í stöðunni að leggja af stað hinn hringinn og sjá hversu langt við kæmumst, þ.e.a.s. eftir að hafa gætt okkur á nýbökuðum pönnukökum hjá mömmu. Þá hófst nú stuðið og þvílíkar torfærur sem við lentum í... úff hvað þetta var gaman Laughing
Því miður hugsa ég svo mikið um að taka hleðslutækið fyrir myndavélina með að ég gleymdi sjálfri myndavélinni...! Já ég veit... Aulaverðlaun dagsins í dag hlýtur... SANDRA! En hún Ólöf tók helling af myndum sem hún ætlaði að brenna á disk og deila með okkur.
Ég mætti svo til baka á Höfn í Hornafirði eldsnemma á mánudagsmorguninn með tvær ferðatöskur og einn kassa fullt af jólaskrauti Cool

Nú er jólastemningin sum sé mætt á Dalbrautina, eitthvað verður maður til bragðs að taka fyrst Bítla-showið er búið og engin almennileg dagskrá eftir vinnu. Ekki það, það er svo mikið að gera í vinnunni að ég gæti svo sem verið að allan sólarhringinn... en held ég væri fljót að brenna út ef það væri málið. Í kvöld fer ég svo á jólahlaðborð hjá Slysó sem ég er nota bene orðinn félagsmaður í (Slysavarnarfélagið) Á morgun er svo fyrsti fundur hjá Singles-klúbbnum Kidda. Þannig að kannski var ekki alveg rétt að segja að það væri engin dagskrá hjá mér.... Wink
Bless í bili krúttin mín og endilega kvittiði nú fyrir mig
Sandy

Athugasemdir

1
Pálína skrifar:
Kvitt kvitt


Vonandi skemmtir þú þér vel í gær og hengir upp marga marga flotta sveinka :)
29. nóvember 2008 klukkan 17:09
2
G. skrifar:
Þú ert uppteknari en páfinn .. OG það er BANNAÐ að hengja upp jólaskraut fyrir fyrsta des. !

;D
30. nóvember 2008 klukkan 03:27
3
solla skrifar:
Ég var einmitt að skreyta smá í gærkvöldi,, svo það væri nú komin pínu jólastemmning 1.sunnud í aðventu :)
Vonandi var gaman á þessum fundi! singles club bara...jájá það bjuggust svo sem allir við því að þú færir í slysavarnarfélagið hehe!

Verðum í spotta
Þín Solla

p.s.
má svo alveg taka myndir af jólaskrautinu svo maður sjái hjá þér :):)
30. nóvember 2008 klukkan 11:55
4
Sandra Björg StefánsdóttirHeheh já Solla mađur getur ekki veriđ í Moritz-ćttinni án ţess ađ ganga í slysó ţađ er nokkuđ ljóst ;)

Og já ţađ er svolítiđ mikiđ ađ gera en ţađ er bara betra... mađur situr ţá ekki á rassinum og starir út í loftiđ á međan ;)
01. desember 2008 klukkan 08:56
5
Harpa Hrönn skrifar:
Jóla jóla.......aldrei of snemmt að skreyta :)er sjálf búin að skreyta helling.....

auðvitað Slysó.....þá er bara kynnast stráknum í mollinu sem var að selja karlinn :)........og hvað er málið með klúbbinn Kidda??? :)

Jólaknús og kossar
Harpa
01. desember 2008 klukkan 13:05
6
Ingibjörg skrifar:
Það lítur bara út fyrir að vera endalaust fjör þarna hjá þér á Hornafirði :)
02. desember 2008 klukkan 23:37
7
Sandra skrifar:
Hahahaha Harpa mín... Litli dyravarðar/björgunarsveitar strákurinn... Maður má víst ekki útiloka neitt... heheh

Það var rosa stuð hjá klúbbnum Kidda... endalaus reglugerða-skrif og svo djamm á eftir :)
03. desember 2008 klukkan 09:24
8
Ragna skrifar:
Jæja á ekki að skella inn nýrri færslu. Kvitt kvitt
Ragna
04. desember 2008 klukkan 08:37
9
solla skrifar:
já sammála fyrri ræðumanni...og ég er enn að bíða eftir myndum af jólahjólaskrautinu.....
leiðist svo sona ein í kotinu..hef ekkert nema myndirnar þínar til að stytta mér stundir mohahahahaha!! :D

Þín Solla
09. desember 2008 klukkan 19:15

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur