Góðan dag... góðan dag...Sandra Björg Stefánsdóttir

Ætli það sé ekki kominn tími til að blogga aðeins Smile

Um síðustu helgi var heilmikil ráðstefna hér í Hornafirði um Atvinnumál við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs sem ég aðstoðaði rósu í Ríki Vatnajökuls við að skipuleggja. Þetta var svo frábær ráðstefna að ég á ekki orð. Hljómar kannski frekar undarlegt þar sem ég kom að skipulagningunni en... Ég hefði verið tilbúin til að borga mikið fyrir að komast þangað ef aðstæður hefðu verið aðrar. Mikill tími fór í ræða um það sem mér finnst óendanlega skemmtilegt þessa dagana en þaðe rfjallamennska. Ég skráði mig í umræðuhóp um fjallamennsku og viti menn þar voru líka einstaklingar eins og Einar Torfi, Einar í Hofsnesi og Jökull Bergmann ásamt mun fleirum... ég fílaði þetta í tætlur. Þarna kviknuðu endalausar hugmyndir... Ég er meira að segja að hugsa um að stela einni eða tveim og þróa inn í NEED verkefnið. Ætla ekkert að segja of margt of snemma en klifur kemur við sögu... og kennsla... og börn... og fullorðnir.. og Höfn... SmileCoolSmile

Klifri klifri...

Reyndar lagðist ég í pest eftir málþingið... eina svakalegustu gubbupest sem sögur fara af. Ætla ekkert að fara nánar út í það hér en þetta er víst að ganga hér á Höfn og því skilur annar hver Hafnarbúi hvað ég á við þegar ég nota þessi stóru lýsingarorð!!!

Næsta helgi verður svo ein skemmtilegasta sem sögur fara af... Það vill þannig til að Skemmtifélagið verður með lokahóf á Smyrlabjörgum. Farið verður á föstudegi og kemið aftur á sunnudegi og yours truely er í Skemmtinefnd ásamt Nönnu og Gullu skvísunum ógurlegu. Við erum því að tala um gleði, gleði, gleði, gleði, gleði... Ég bara sár VORKENNI þeim sem sjá sér ekki fært að mæta Wink

Jæja best að fara að vinna fyrir laununum sínum
Adios
Sandra

Athugasemdir

1
Sandra Björg Stefánsdóttiræj elskurnar mínar, eruð þið ekki til í að kvitta?
14. nóvember 2008 klukkan 08:37
2
rut skrifar:
blessuð, er að skoða bloggið þitt í fyrsta skipti í langan tíma... gleymi alltaf að skoða svona ;)
gaman að vita hvað er að gerast hjá þér líka af því ég actually veit hverjir það eru sem þú nafngreinir og svona ;) hehe
hljómar allt very spennó hjá þér :)
skemmtu þér vel um helgina!
14. nóvember 2008 klukkan 09:31
3
rut skrifar:
blessuð,

gaman að fylgjast með þér, og vita hverjir þeir eru sem þú ert að nafngreina og hvað þú ert að tala um ;)
djöfull lærir maður mikið á einni helgi á höfn ;)
hehe
skemmtu þér vel um helgina.
14. nóvember 2008 klukkan 09:32
4
Sandra Björg StefánsdóttirHehe jebbsí Rut... nú er bara um að gera að koma sem fyrst aftur og endurnýja kynnin við liðið ;)
14. nóvember 2008 klukkan 09:46

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Staður: Höfn Hornafirði
  • Atvinna: Verkefnastjóri við Háskólasetrið í Hornafirði

Innskráningar kubbur