Bítla show á endaSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er Bítla-æðið bara búið... Það er eiginlega alveg ótrúlegt hvað þetta er búið að vera skemmtilegt og fljótt að líða.
Síðasta sýningin var á laugardaginn var, Harpa og Heiða skvísur komu galvaskar úr Reykavíkinni svo það var endalaust stuð á Dalbrautinni... eins og reyndar alltaf Cool
Við kjöftuðum langt fram á morgun á föstudagskvöldinu þannig að við gerðum eiginlega voða lítið á laugardeginum. Ég fór með skvísurnar í þennan hefðbundna göngutúr um bæinn, svo tókum við rúnt og enduðum í Fákaleirunni þar sem við horfðum á landsleikinn. Enda urðum við að taka þessu rólega því um kvöldið var jú sýningin ógurlega... ekkert vit í að eyða orkunni yfir daginn...

Ég hafði eiginlega ekki miklar væntingar til þessarar sýningar því næst síðasta sýningin (og ballið) voru svo ótrúlega skemmtileg að ég var viss um að ekkert mundi toppa það... en það kom á daginn að ég hafði rangt fyrir mér því þetta var alveg ENDALAUST skemmtilegt... og þess vegna er eiginlega enn sorglegra að þetta sé búið. Allt of langt að bíða í eitt heilt ár eftir því að þetta byrji aftur! Já ég held að það sé óhætt að fullyrða að ég verði með að ári... Smile

Nú tekur við ráðstefna um næstu helgi um Atvinnulíf og nýsköpun við lendur Vatnajökulsþjóðgarðs sem haldin er hér á Hornafjarðarsvæðinu. Endilega skoðiði hana hér, margir MJÖG skemmtilegir fyrirlesarar Smile
Svo meigið þið líka kíkja á frétt inni á hornafjordur.is sem hún Sigrún Inga skrifaði um okkur á Háskólasetrinu.

Nú er ég búin að setja inn svolítið af myndum frá NEED ráðstefnunni, endilega skoðiði.

Jæja þá er þetta gott í bili
Sandra

Athugasemdir

1
Sandra Björg StefánsdóttirMá ekki bjóđa ykkur ađ kvitta??? :)
03. nóvember 2008 klukkan 14:34
2
G. skrifar:
KVITT :p
03. nóvember 2008 klukkan 20:54
3
Heiđa skrifar:
hæ sæta,
Takk kærlega fyrir GEÐVEIKA helgi.
Ég skemmti mér þvílíkt vel.
Og þú mín kæra ------ hvílíkir hæfileikar !!!
Hvern hefði grunað að undir taktföstum söngnum við "kirsuberin stinn" væri þessi gullfallega söngrödd.
Það var mjög gaman að fá að kynnast þér og þínum á Höfn. Allir tóku svo vel á móti okkur.
Takk elsku Sandra mín fyrir gistinguna, uppihaldið, göngutúrinn og allt.
Þú ert algjör perla, eins og Gugga frænka þín sagði.
Knús og kossar
Heiða
04. nóvember 2008 klukkan 13:20
4
Harpa Hrönn skrifar:
Hæ hæ sæta skvís :-)

Tek undir allt sem systa skrifar hérna að ofan :-)......hún lýsir öllu sem mig langaði að skrifa. Enn og aftur takk fyrir helgina og allt þar á milli :-)
Svo er það MIB ball þegar við höfum tíma og rifjum upp gamla takta við lagið góða ;-) og töku Jónsa í kennslu við að verða eins og hann var .......hahahhaha ;-)

Knús og kossar og bið að heilsa þér og þínum
Harpa (bið að heilsa Stjána ;) )
04. nóvember 2008 klukkan 15:11
5
Sandra skrifar:
NEI NÚ ER MÉR NÓG BOÐIÐ...!!!! Ég var að hlusta á nauðgun á einu besta lagi íslands sögunnar...
Skjöldur Eyfjörð að syngja Fjöllin hafa vakað...
Hlustiði á þetta ef þið hafið ekki gert það nú þegar... http://www.youtube.com/watch?v=zcE7UtvH4tY

Annars takk fyrir helgina sömuleiðis sætu systur... og veriði bara velkomnar sem fyrst aftur, þá megiði gjarnan taka litla orminn með ;)

Sandra
05. nóvember 2008 klukkan 09:13
6
Heiđa skrifar:
OMG - HJÁLP !!! Þetta er alveg glatað og ég styð þig í að kalla þetta nauðgun.
Heiða
05. nóvember 2008 klukkan 11:02
7
solla skrifar:
Ég var nú búin að frétta þetta, en hvorki sjá né heyra sjálf.. í 1.lagi getur drengurinn ekki sungið, sorry!
í annan stað er þetta ekkert annað en nauðgun, þetta er eitt af þeim lögum sem á EKKI að endurgera.
Og að lokum, hvað er málið með myndbandið???????? OMG eh ömurleg 90's eftirlíking.

úff maður bíður bara skaða að horfa á þetta :(

kv. Sollz
08. nóvember 2008 klukkan 19:03
8
solla skrifar:
Ég var nú búin að frétta af þessu, en hvorki heyra né sjá það sjálf.
Sko í 1.lagi getur drengurinn ekki sungið, sorry!
í annan stað þá er þetta eitt af þeim lögum sem má EKKI endurgera hreinlega.
að lokum, hvað er málið með MYNDBANDIÐ??? eh ömurlegur 90's fýlingur í þessu sem ég er ekki að digga sko!!!

Svei mér þá ef maður bíður hreinlega ekki skaða af að hafa horft á þetta!! :(
kv. Sollz
08. nóvember 2008 klukkan 19:06
9
solla skrifar:
Ég var nú búin að frétta af þessu, en hvorki heyra né sjá það sjálf.
Sko í 1.lagi getur drengurinn ekki sungið, sorry!
í annan stað þá er þetta eitt af þeim lögum sem má EKKI endurgera hreinlega.
að lokum, hvað er málið með MYNDBANDIÐ??? eh ömurlegur 90's fýlingur í þessu sem ég er ekki að digga sko!!!

Svei mér þá ef maður bíður hreinlega ekki skaða af að hafa horft á þetta!! :(
kv. Sollz
08. nóvember 2008 klukkan 19:06
10
solla skrifar:
uuuuu já er tölvan mín á eh sýrutrippi eðaaaa??
er s.s. að leggja áherslu á að ég var ekki ánægð með þetta lag hehehe.
08. nóvember 2008 klukkan 19:07
11
Sandra skrifar:
Hahahah ég var þvílíkt ánæg þegar ég sá að heilir 10 voru búinir að kommenta... en þá var þetta eiginlega allt sama kommentið ;)
10. nóvember 2008 klukkan 13:06

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur