NEED og Bítla showSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er ráðstefnan svakalega búin sem og frábær helgi 
NEED gekk bara alveg ágætlega, þrátt fyrir að nánast allt hafi farið úrskeiðis sem mögulega gat farið úrskeiðis. Hin íslenska veðrátti spilaði þar stóran þátt. Til að byrja með gátu vesalings útlendingarnir ekki lent á Húsavík eins og gert hafði verið ráð fyrir heldur fóru á Akureyri og þá þurfti að bjarga rútu. Þau voru því ansi lúin þegar þau mættu á Gamla Bauk í kvöld mat um kl 21.30 á mánudagskvöldið, sum búin að ferðast í 16 tíma. Daginn eftir var ekki hægt að keyra að Dettifossi vegna snjós þannig að öll dagskrá dagsins raskaðist. Svona gekk þetta meira og minna alla vikuna en allir voru svo þolinmóðir við okkur, þá bæði ráðstefnu gestir og ferðaþjónustuaðilarnir. Sérstaklega var hann Andri frábær enda "ekkert mál" mest notaða orðasamband hans síðustu vikuna en Andri var bílstjórinn okkar. Hann vinnur fyrir fyrirtækið Fjallasýn sem ég mæli svo sannarlega með að þið hafið samband við ef þið þurfið á rútu að halda, ég er meira að segja með gemsann hjá þeim öllum svo hafiði bara samband við mig. Kannski ég fari bara fram á söluprósentur...
Þessi vika var ótrúlega skemmtileg og lærdómsrík þó að svefninn hafi verið með allra minnsta móti og stressið töluvert. Síminn var til dæmis svo mikið notaður að hann er farinn að pípa og það ískrar í honum í tíma og ótíma þessa dagana þó svo að enginn svo mikið sem horfi í áttina að honum...
Á fimmtudaginn borðuðum við svo hátíðarkvöldverð á Hótel Höfn sem endað á því að fimm lög úr Bítlashowinu voru tekin. Eitthvað hef ég verið farin að láta á sjá vegna stess því meira að segja Heiðar hafði orð á því 
Á föstudagskvöldið komu svo mamma og Solla í sveitina til mín, og ásamt Pálínu var djammað út í eitt alla helgina. Ég skemmti mér amk alveg óendanlega vel og ég vona svo sannarlega að það sama gildi um þær. Skvísurnar skelltu sér á showið á laugardeginum ásamt Siggu, Steina, Ingu, Halldóri, Rögnu og Evu og ég er ekki frá því að ég hafi bara átt klapplið kvöldsins 
Það eru fullt af myndum frá laugardeginum inni á myndasíðunni minni og svo á ég von á myndum frá Pálínu og NEED á næstu dögum sem ég skelli kannski inn við tækifæri.
Held ég látið þetta duga í bili en vil þó segja
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Í DAG ELÍN ÁSA 9 ÁRA PÆJA 
bless í bili
Sandra
Athugasemdir
Pálina: neinei ég var búin að gleyma honum hehhee....eins gott að jakkinn var ekki rifinn :) flugið var nú ekki alveg að gera sig :Þ
Já snilldar ball og meiri háttar helgi :D
Ég missti alveg af þessum pólverja en ég man að ég sá ykkur grenjandi úr hlátri þegar ballið var búið :)
já hann var langt frá því að vera eh 5 kíló sko hehe

Ég var að rifja allt upp í rútunni á leiðinni á Krókinn áðan og datt eitt snilldaratriði í hug sem við gleymdum alveg að hlægja af !!!
Solla: mannstu eftir pólverjanum sem var að reyna að fara í jakkanum þínum heim og við föttuðum það á síðustu stundu. Þetta er bara sjúkkkkllleggggaaa fyndið. Grey pólverjinn sem var nú langt því frá að vera einhver 5 kíló var að reyna rogrembast við það að klæða sig í svarta jakkan hennar Sandy :)
Snilldin ein frá snilldarballi og snilldarhelgi