BritneySandra Björg Stefánsdóttir

Afþví að ég hef nú verið svo málefnaleg undanfarið og aðeins fjallað um daginn og veginn þá verð ég að koma með smá gelgjublogg... bara svona af því að það er svo fallegt veður hér í sveitinni Cool

Ég var að skoða frétt á www.visir.is um hana Britney spears vinkonu mína. Ég veit að ég "á" ekki að fíla hana og ég geri það eiginlega ekki... en það kunna samt allir lögin hennar, tala nú ekki um þessi gömlu... Hörðustu rokkarar geta raulað flest af fyrstu lögunum hennar. Britney greyið hefur nú fríkað út og gert örugglega flest þau mistök sem hægt er að gera, nú er hún samt sem áður risin upp frá dauðum og er að "meika það" enn einu sinni. Ég kíkti á nýja myndbandið hennar Wominazier  og þó mér finnist lagið eiginlega hörmung þá minnir myndbandið mig svolítið á I'm a slave 4 you sem ég ELSKA. Já ég veit ég veit... eflaust finnst mörgum ykkar núna eins og ég sé að bregðast ykkur en ég þori alveg að viðurkenna að mér finnst lagið ÓTRÚLEGA TÖFF (Palagonited tuff kannski..!!!) og myndbandið eiginlega enn meira töff!!! OG HANA NÚ!!!

Annars er allt að smella fyrir ráðstefnuna, bara 4 dagar í að hún hefst. Dagskráin komin á netið HÉR, hótel og veitingastaðir bókaðir, Pálína búin að staðfesta komu sína og allt að gerast. Smile

Bítla-showið er auvðitað í fullum gangi, sýning fyrir Heppuskóla (Anna Regína) í kvöld, FAS á morgun og svo venjuleg sýning á laugardaginn. Einhvern veginn er ég nú komin í Skemmtinefnd Skemmtifélagsins, sem þýðir að það er í mínum höndum að skipuleggja Lokahófið... Að sjálfsögðu geri ég það ekki ein, Nanna og Gulla eru með mér. Ég veit nú ekki alveg hvernig þetta gengur fyrir sig en það kemur allt í ljós... við erum öll svo ÝKT skemmtileg að það er engin hætta á öðru en að lokahófið verði stórskemmtilegt Laughing

Jæja gott í bili
Sandy

Athugasemdir

1
solla skrifar:
Guð Lagið er alveg glatað!!! myndbandið svona ok.
Gamla Britney alltaf langbest bara.

Kv, Solla
17. október 2008 klukkan 11:41
2
Nanna skrifar:
Hæ yndislegust!! :) Þetta var nú ágætisball í gær bara.. Ætlaði nú bara að þakka fyrir mig. Ef ég sé þig nú ekkert á meðan þessi svaka ráðstefna er, þá bara pojj pojj baby girl! ;) Knúsknús
19. október 2008 klukkan 19:56
3
G. skrifar:
berrössuð Britney í myndbandi, ábyrgist vinsældir ..
25. október 2008 klukkan 00:06

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur