Ýkt gott lag!!!!Sandra Björg Stefánsdóttir


Bítla show

Þá er búið að FRUMSÝNA Bítla showið Brosandi Dagurinn í gær var ÆÐISLEGUR...!!! Fyrst var brunch heima hjá Rögnu og Heiðari fyrir allt liðið í sýningunni. Fullt af mat frá hótelinu og MIKILL hlátur, allir í þrusu gír fyrir kvöldið. Við mættum svo upp á Hótel um það leiti sem húsið var að opna og fórum að hafa okkur til. Ég hefði ekki trúað hvað þetta var gaman, í nokkra klukkutíma sátum við bara niðri í herbergjum og biðum eftir að maturinn kláraðist, það tók lengri tíma en við héldum en það var samt svo gaman því allir tróðust saman inn í tvö pínulítil herbergi og horfðu á sjónvarpið og gagnrýndu klæðnað fólksins þar!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Sýningin gekk eins og í sögu og allir lögðu sig 150% fram og gerðu sitt allra besta. Ótrúlegur munur að syngja fyrir framan svo líflega áhorfendur, allir sungu með og í lokin stóð fólk upp og dansaði við sætin sín. GEGGJAÐ, nú skil ég hvað Nanna og fl voru að tala um þegar þau sögðu að maður yrði háður þessu.
Á ballinu var endalaust stuð, enda allir í spennufalli og adrenalín-flæðið var endalaust..! Það er best að taka það fram að á þessu balli var engin athygglissýki í gangi á sviðinu enda hét hljómsveitin sem lék fyrir dansi Parkusk eða Kusket... man það ekki alveg... enda skiptir það ekki máli, bottom line-ið er að bæði Kusk og Parket léku fyrir dansi...! Það stendur þá svart á hvítu hér að á ballinu var ENGIN athygglissýki Glottandi
Eftir ballið fórum við svo til Bjartmars og Önnu í frumsýningarpartý. Þau voru búin að útbúa dýrindis mat með aðstoð frá húsfreyjunni í Fákaleiru 8c. Það var svo gott að fá mat, enda fáir búnir að borða nokkuð með viti frá því í brunchinu um morguninn. Ég ætla svo sem ekki að hafa mörg orð um þetta partý enda munu myndirnar tala sínu máli... þær eru allar komnar inn á myndasíðuna mína Brosandi

Eitt sem ég þarf að minnast á er spila-partý sem haldið var á Vogarbrautinni eftir general prufuna. Við vorum upprunalega átta manns og spiluðum Popp punkt... sem ég gat EKKERT í... ekki mín sérfræðideild að vita allt um tónlist. Engu að síður var ég í vinningsliðinu!!!! AÐ SJÁLFSÖGÐU!!! Þakka sönghæfileikum Stjána og keppnis anda hans þar að mestu. En það var ekki það sem ég ætlaði að minnast á. Í miðju spilinu verða allir allt í einu eitthvað skrítnir og líta á mig. Ég áttaði mig alls ekki á því hvað var að gerst. Allri í einu heyrist "Ertu búinn að spyrja hana? Spurðu hana!!!" Ég varð pínu stressuð... hvað í ósköpunum hafði ég gert af mér?
"Hjaddna, Sandra... Hver er pabbi þinn?"
"HAAA?"
"Lék hann í bíómynd?"
Þetta snérist þá um Sódómu Reykjavík Glottandi Eftir smá hláturskast fóru frasarnir að fljúga... Ótrúlegt hvað þetta vekur alltaf mikla lukku, enn er ég að fá komment frá Hólum um kallinn... Ekki það, mér finnst það alls ekki slæmt, allra síst þegar ég er að reyna að fá athyggli frá einhverjum sem finnst þetta einstaklega áhugavert.  Kallinn hefur sum sé oft hjálpað (ómeðvitað) til í þeim efnum Svalur

Jæja þá er þetta orðið gott í bili...
Ciao Sandy

Athugasemdir

1
Stjáni McCartney skrifar:
Hehehee..... Sæl músin mín, þetta var of gott kvöld hjá okkur, mér finnst við algerir snillingar.
P.s bið að heylsa(með Inga T) honum pabba þínum, hann er lifandi goðsögn, ýkt fyndinn....
Hafðu það bara sem allra best í kreppunni......þinn ALLRA BESTI VINUR STJÁNI
05. október 2008 klukkan 19:30
2
Nanna Imsland skrifar:
Sæl sæta mín! Já þetta var alveg hreint amaaaaazing.. :) :) Sit hérna í heimspeki kl.8.25 og höfuðið á mér er svo frosið. Get ekki hugsað heila hugsun.. ;)
Allavega maður er bara alveg í skýjunum! Svo er bara sýning 2 á laugardaginn, og við ætlum sko að TOPPA frumsýninguna!!! Vonandi ert þú frjórri niðri í vinunni en ég hérna uppi..
Kv. Nanna
06. október 2008 klukkan 08:25
3
Gott að vita að það eru fleiri sambandslausir í dag en ég. Hélt kanski að það væri aldurinn - en er feginn að svo er ekki :) En við stóðum okkur öll alveg frábærlega um helgina og ég er ekki í nokkrum vafa um að við gerum það áfram næstu helgar. Við erum öll svo æðisleg :) .... (og jákvæð)
06. október 2008 klukkan 09:22
4
Sandra Björg StefánsdóttirVið verðum betri með hverri sýningunni... ekki spurning, eiginlega vorkenni ég fólki sem kemur á síðustu sýninguna... þau eiga örugglega bara eftir að gráta ;)
Ég held ég geti alveg viðurkennt að ég er ekki besti starfsmaður allra tíma í dag... einbeitingin einhvestaðar annarstaðar en inni í hausnum mínum...

Get ekki beðið eftir næsta laugardegi....

ÝKT gott show... ýkt gaman ;)
06. október 2008 klukkan 09:52
5
solla skrifar:
geggjaðar myndir sys..hlakka geggjað til að koma og sjá hjá ykkur!

Brjánsi sýra já...held við þurfum ekkert að ræða það mál neitt ;)

kv, þín Solla
06. október 2008 klukkan 11:04
6
Pálína skrifar:
Þið eruð flottust

Myndirnar segja allt

Hlakka mikið til að sjá ykkur ( vona að það takist)

Kv
Pála pipar
06. október 2008 klukkan 16:30
7
Pabbi skrifar:
Fatta ekki um hvaða kall er verið að tala í þessu bloggi. KALL... hver er það?
Gleymdu ekki stórleikkonunni sem var teipuð. Kunni ekki að hjóla svo hún kom bara hlaupandi...
Pabbsen
07. október 2008 klukkan 23:03
8
Nanna Imsland skrifar:
Ciao bella! Gaman að kíkja á þig í gær. Ýkt flott íbúð. Hehe. Legg til að við förum að hafa smá þáttasyrpukvöld, fyrstu 2 þættina af nýju seríuunum af family guy, simpsons og greys:) Hehe. Allavega duglega ég mætti í skólann í morgunn, sé þig örugglega niðrá gangi í hádeginu. :)
08. október 2008 klukkan 10:59
9
Mćja frćnka skrifar:
Vá hvað er mikið að gerast hjá þér mín kæra.

Skemmtilegar myndir af sjóvinu.. jii hvað þetta hefur verið gaman.
Annars vildi ég bara kasta á þig kveðju og bið að heilsa í fjörðin :)
08. október 2008 klukkan 21:46
10
solla skrifar:
hahaha...nákvæmlega, ÞORÐI ekki að hjóla hahaha!
08. október 2008 klukkan 22:08
11
Pabbi skrifar:
Ok, segjum það ÞORÐI ekki að hjóla... en KUNNI það alveg... hehehehehe
Pabbsen sem man þetta kannski pínulítið öðruvísi, en hann er líka KALLINN?????
Þú varst að minnsta kosti æðisleg. Eins og Sandra var í Stundinni okkar. Þar lék hún oft.

Kveðja pabbsen
11. október 2008 klukkan 15:30

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur