Hæhæ
ófyrirgefanlegt að gleyma svona myndavélinni kona!!
En myndirnar af æfingunni dekka þetta aðeins :) úllala hlakka til að koma á showið, við höldum okkur bara við 25.okt :)
See yah babe
Solla
LaufskálaréttSandra Björg Stefánsdóttir
Um síðustu helgi skellti ég mér norður í land á Laufskálarétt.Ég flaug suður á föstudaginn og brunaði svo norður í land með Rannveigu skvísí pæ. Stelpugreyið þurfti að hlusta á Bítlana ALLA leiðina og tjáningar mínar um þetta frábæra show sem við erum að setja upp á Höfn
Það var svo æðislegt að koma norður, sjá fjöllin mín og litina og húsin og fólkið og bara allt... Ég dró Rannveigu beina leið í Jöklatúnið til að knúsa Pálínu pæju og Toníuna sem er bara alls ekkert lítil lengur. Litla sílið mundi alveg eftir Söndrunni og það þótti mér svoooo vænt um.
Við Rannslan héldum svo upp á Hóla þar sem við gistum hjá Erni. Á laugardeginum hófust svo réttarstörf. ÞAÐ VAR SVOOOOOOO GAMAN!!!! Ég held bara að ég hafi hitt ALLA, vissi það svo sem fyrir fram að allir sem eru menn með mönnum láta sig ekki vanta á Laufskálarétt, ég nenni eiginlega ekki að telja upp þá sem ég hitti því í fyrsta lagi mun ég pott þétt gleyma einhverjum og í öðru lagi held ég að það séu takmörk á því hvað maður skrifi mikinn texta í hverri færslu
Á sunnudaginn héldum við af stað í bæinn aftur eftir þetta maraþon ferðalag. Við stoppuðum aðeins í Varmalandi og knúsuðum ömmu, afa og pabba en gömlu hjónin ákváðu að bruna norður í réttir því afi var svo hress.
TAKK ÖLL SÖMUL FYRIR FRÁBÆRA HELGI


Ég verð að viðurkenna að mér urðu á þau mistök að ég gleymdi að taka myndavélina mér norður, þannig að engar myndir eru til frá helginni góðu, ég reyndi að bæta það upp með því að taka vélina með á æfingu í fyrrakvöld og nú er ég búin að setja inn fullt af myndum frá Bítla showinu
ÞAÐ ERU ÞRÍR DAGAR Í FRUMSÝNINGU!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
bless í bili
Sandy
Athugasemdir
3
Pálína skrifar:
Sandy dandy
Við gleymum sko ekki myndavélinni þann 25. oktober !!!
Ég verð grúppía number one þegar þú tekur lögin þín. Guð ég er SPENNT KONA !!!
kannski að þú hættir bara starfinu sem ferðamálafræðingur og fetar í fótspor pabba gamla. Sandra Björg leikkona og söngdíva Íslands ahhahahhahaha......
Annars bara knús úr snjónum hér á Króknum bruuuuuuuu
Pála sem getur ekki beðið eftir að hitta allt skemmtilega fólki á Höfn ;)
Við gleymum sko ekki myndavélinni þann 25. oktober !!!
Ég verð grúppía number one þegar þú tekur lögin þín. Guð ég er SPENNT KONA !!!
kannski að þú hættir bara starfinu sem ferðamálafræðingur og fetar í fótspor pabba gamla. Sandra Björg leikkona og söngdíva Íslands ahhahahhahaha......
Annars bara knús úr snjónum hér á Króknum bruuuuuuuu
Pála sem getur ekki beðið eftir að hitta allt skemmtilega fólki á Höfn ;)
02. október 2008 klukkan 14:55

Pabbsen