Djamm-ćfingar-djammSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er helgin afstaðin... helgin sem átti að fara í rólegheit, afslappelsi eftir allt stressið undanfarið, að ég tali nú ekki um svefn!!! Plönin breyttust aðeins... og bara sennilega til hins betra Glottandi

Singstar


Á föstudagskvöldið var æfing á showinu og eftir það hörku singstar partý sem stóð langt fram á morgun... Þvílíkt stuð... Þá átti nú ekki að gera neitt á laugardaginn og það stóðst nokkurn veginn til að verða 23.00 því þá fékk ég sms frá Nönnu skvís um að koma á ball með KUSK... og AÐ SJÁLFSÖGÐU skellti ég mér á ball Svalur Þvílíkt stuð... fyrir ykkur sem ekki vitið það þá er KUSK hljómsveitin sem leikur undir í showinu, svona að stórum hluta allavega, svo eru alltaf einhverjir athygglissjúkir einstaklingar sem troða sér upp á svið með þeim allt ballið... Ég hafði ekki farið á almennileg dans-djamm síðan einhvetíman fyrir norðan og átti því töluvert uppsafnað af danskvóta sem var nýttur út í ystu æsar... Á leiðinni í eftirpartý dundi þetta svakalega haglél á bílnum. Sem betur fer voru allir komir inn í Pollan nema Stjáni greyið sem varð hálf vankaður fyrir vikið Svalur Ég varð hrædd um að það kæmu beyglur í bílinn... ég get svo svarið það Glottandi
Í gær var svo æfing-æfing og æfing... gaman gaman gaman... já og auðvitað Svartir Englar og Dagvaktin!

Eitt að lokum, þið ykkar sem ætlið að koma á showið... PANTIÐI MIÐA STRAX... skilst að það sé allt að verða uppselt!!!

Matseðill
  Forréttur: Tortilla bleikja - Heit humarfroða - Humar vorrúlla
  Aðallréttur: Hægeldaður lambaskanki með tómatmauk sósu

  Eftirréttur: Hvítt súkkulaði skyr frauð með mangó ís og ananas

Jæja gott í bili... kíkið endilega á myndirnar
Ciao Sandra

Athugasemdir

1
Sandra Björg StefánsdóttirNú ţegar teljarinn er bilađur ţá veit ég ekkert hversu margir skođa ţessa blessuđu síđu... ţess vegna megiđ ţiđ alveg kvitta :)
23. september 2008 klukkan 08:12
2
Ragna skrifar:
Jæja kella er ekki rétt að ég kvitti fyrir mig. Þegar þú ert 25 ára ÁTTU að hafa úthald í tvö kvöld í röð enda stóðstu þetta vel. Það verður eitthvað gott í matinn á leirunni í kvöld, þú lætur sjá þig ef þú ert svöng.
Kv Ragna
23. september 2008 klukkan 08:51
3
Sandra Björg Stefánsdóttirjáháttsss ég kíki sko í mat á leiruna... alltaf gott að borða þar Brosandi

Endilega kíkiði svo öll á www.skemmtifelag.is  ..... Fullt af upplýsingum um showið ógurlega Svalur
23. september 2008 klukkan 12:50
4
Nanna Imsland skrifar:
Hæ sæta. Takk fyrir síðast. Loksins fann síðuna þína í gegnum google. Hennti óvar linknum í smsinu :)
Allavega sé þig í kvöld.
Ciao bella
Nanna
23. september 2008 klukkan 15:52
5
solla skrifar:
skemmtifelaf.is er eh að krassa, allaveganna er búið að loka síðunni :( En við ÆTLUM að koma 25.okt!!! og hana nú!

Heyrumst skvís. og sjáumst á föstud.

þín sollalalalla -- mímímímímííííí -- ég heiti krisján jóhannsson og fæ 500 þúsund fyrir að segja þessa setningu --

24. september 2008 klukkan 19:06
6
Pabbi skrifar:
Vissi að þú færir á kaf í fjörið á Höfn. En hlakka til að hitta þig um helgina í norðurlandinu... ÞAR ER FJÖR!
Þinn vin pabbi
24. september 2008 klukkan 23:34
7
það er mikið fjör hjá þér á Höfn. Ég hef einu sinni séð skemmtun með skemmtifélaginu á Höfn og var það mjög góð skemmtun.
kemur þú á Laufskálarétt um helgina?
kv
Þórður Ingi
25. september 2008 klukkan 08:56
8
Stjáni McCartney skrifar:
Halló halló.......googlaði orðinu bítlashow og þá varst þú fyrir valinu, ATHYGGLSSJÚKUR...hummm nei var bara að hjálpa Heiðari, hann var geðveikt þreyttur sko...hhee..... Jæja vika í frumsýningu, djöfull hlakkar mig til, þetta verður algjörlega magnað, við eium eftir AÐ RÚLA ÞESSU UPP..... Heyr heyr....SEE YOU SOON....
27. september 2008 klukkan 21:18
9
Sandra skrifar:
Hehehehe Stjáni minn, kannski var ég vara að tala um Frikka... já eða Júlla... ;)
Samt svolítið fyndið að hafa heyrt oft oft oft að þú hlakkaðir svoooo til að fara á ball og "þurfa" ekki að vera uppi á sviði...!

En já næsta vika verður alveg milljónn... vúhúúú
29. september 2008 klukkan 10:00
10
Blessuð Sandra, ég á til með að skilja eftir mig spr. Var að leita að upplýsingum um bítlashowið og þá var þín ofarlega á lista.. (góð auglýsing haha:)
Ég ætla að mæta á frumsýninguna, svo ég sé þig bara þar, gaman að heyra að þú sért flutt á Höfn!
Sjáumst um helgina og gangi ykkur vel! :)

Guðrún
29. september 2008 klukkan 16:31
11
Stjáni McCartney skrifar:
Hehe....eins gott að þú hafir verið að meyna Frikka eða Júlla.....því ég er með eindæmum til baka alltaf:( En jæja best að fara að hlíða yfir textan.. SEE YOU ON THE WILDSIDE...
30. september 2008 klukkan 18:50
12
Harpa Hrönn skrifar:
Hlakka til að koma 1. nóv og sjá sýninguna ;-)

Knús til þín
Harpa Hrönn
30. september 2008 klukkan 23:05

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur