Myndir frá nýju íbúđinni Sandra Björg Stefánsdóttir
Síðustu daga hef ég verið í hálfgerðri fýlu og ekki nennt að blogga því teljarinn á síðunni sýnir alltaf bara að tveir hafi skoðað hana síðasta sólarhringinn... nema hvað nú ákvað ég að kíkja inn í stjórnunarkerfið á teljarann og sá að ég get tekið ánægju mína á nýjan leik. Teljarinn á forsíðunni er bara bilaður enn einu sinni... Nú þegar hafa 20 manns kíkt á síðuna mína... þó enginn hafi kvittað... hmmmmm
Nú er íbúðin mín alveg tilbúin, búin að hengja upp allar myndir og þess háttar. Mamma og Þorbjörn komu til mín um síðustu helgi og hjálpuðu mér að leggja loka hönd á verkið. Mamma kom líka með fullt af blómum frá sér og Grétu þannig að nú er heilmikið líf í íbúðinni.
Ég tók nokkrar myndir um helgina og þær eru nú komnar inn á myndasíðuna mína.
Nú eru æfingarnar á Bítla showinu komnar á fullt, við fluttum dótið allt upp á hótel í gærkvöldi þannig að nú er alvaran tekin við... þetta verður alveg rosa gaman... Solla er að hjálpa mér að finna búninga og allt að gerast
jæja gott í bili
Sandra
Athugasemdir
2
Ţórđur Ingi Bjarnason skrifar:
þetta er flott íbúð hjá þér, Gangi þér vel á leiksviðinu.
17. september 2008 klukkan 15:05
3
Sandra Björg Stefánsdóttir skrifar:
Hehe Elín Ása sagði um daginn: "Ég vildi að það væri til sjónvarpsþáttur um IKEA, þá gætu þeir komið til Söndru því það er allt úr IKEA þar!!! "
hehehe IKEA beibí
AÐ SJÁLFSÖGÐU eru myndir af pæjunni uppi á vegg á BESTA stað
Takk Þórður, ég reyni að standa mig í gaulinu :p
17. september 2008 klukkan 15:07
4
Elín Sig skrifar:
Hæ skvís
Kvitti kvitt ég var farin að undrast bloggleysið
en ákvað bara að þú værir á fartinni með KÖNNUN!!
Kv. Ella
Kvitti kvitt ég var farin að undrast bloggleysið
en ákvað bara að þú værir á fartinni með KÖNNUN!!
Kv. Ella
17. september 2008 klukkan 18:03
5
Inga Ósk skrifar:
Ég kíki oft á þig Sandra mín en er ekki dugleg að kvitta, maður verður nú að fylgjast með.
Íbúðin er mjög flott og notaleg hjá þér og ég hefði alveg verið til í matarboðið, frétti að það hefði verið flott og góður matur.
Kv Inga Ósk
Íbúðin er mjög flott og notaleg hjá þér og ég hefði alveg verið til í matarboðið, frétti að það hefði verið flott og góður matur.
Kv Inga Ósk
18. september 2008 klukkan 09:01
6
Sissa skrifar:
Hæhæ
Rosalega flott íbúðin Sandra!!! :) Bara meiriháttar sko .. Alltaf gaman að skoða myndirnar hjá þér ;)
Gangi þér vel á æfingunum fyrir showið .. og nottla á showinu sjálfu hehehe þetta á eftir að verða rosa flott hjá ykkur :) Tekur nú myndir fyrir okkur til að skoða ;)
Kveðja frá okkur hér :)

18. september 2008 klukkan 10:11
7
solla skrifar:
LOKSINS!! íbúðin kemur ótrúlega vel út sandra mín. Hlýleg og björt. En hvar er græna flaskan sem ég keypti í IKEA handa þér? hún átti sko að vera á hillunni inní forstofu, til að tengja græna litinn sko :D hehe. Gott að myndin passar!
En vá hvað gesta og BAÐHERB. eru geðveik. Gestaherb. er bara allt allt annað herb en þegar það var tómt með ógó málningunni hehe ;)
Hlakka til að koma og gista hjá þér sandra mín. Innilega til hamingju með ótrúlega flottu íbúðina :)
Svo læturu mig bara vita hvenær þú vilt fá auka kjólinn fyrir showið?
Gangi þér vel í vinnunni og á æfingum sætust.
Þín Solla

18. september 2008 klukkan 17:34
8
Pabbi skrifar:
Alltaf flott og fallegt í kringum þig...
Það er allt í lagi að það sjáist í föt og innkaupapoka og svona eitthvað dót á gólfinu...
að minnstakost svona annað slagið.
Pjo,poj með showið til ykkar allra.
Óskaplega sem ég er stoltur af þér Sandra mín
Þinn vinur
Pabbi

19. september 2008 klukkan 01:11
9
Sandra skrifar:
Takk fyrir kveðjurnar öll sömul :) Þið eruð velkomin í heimsókn hvenær sem er...
Solla: Græna flaskan er sem stendur notuð sem vatnsflaska og er mjög góð sem slík þó ég skuli skoða málið þegar ég kem heim um hvort hún henti kannski betur sem forstofu-stáss ;)
Solla: Græna flaskan er sem stendur notuð sem vatnsflaska og er mjög góð sem slík þó ég skuli skoða málið þegar ég kem heim um hvort hún henti kannski betur sem forstofu-stáss ;)
19. september 2008 klukkan 09:05
10
Harpa Hrönn skrifar:
Hæ hæ skvís,
Yndisleg nýja íbúðin þín ;-).......jamm ég verð að vera sammála pabba þínum.....pínu drasl má sjást :-)........já kvitta!!!!......er ekki alveg nógu dugleg að kvitta......en skoða sko oft síðuna þína því það er svo gaman að lesa bloggið.
Hafðu það gott og hver veit nema að maður eigi leið á Höfn :-)
Knús og kossar frá okkur mæðgum
Harpa og Gabríela Ósk

19. september 2008 klukkan 09:29

Sófasettið er geggjað, ég er slefandi hérna yfir því.
Eins gott að hólapæjur séu á myndveggnum ;) hehehehehhehe
Kveðja úr rokinu á Króknum