Dalbraut 8, 780 HöfnSandra Björg Stefánsdóttir

Fluttningur


Þá er ég formlega flutt úr Fákaleiru 8c. Nýtt heimilisfang er:

Dalbraut 8
780 Höfn Hornafirði

Ég er búin að sofa 3 nætur og líkar svona líka vel Brosandi En ég hefði aldrei getað gert þetta ein, Solla og Haffi hjálpuðu mér að mála og svo hafa Ragna og Heiðar verið endalaust dugleg við að hjálpa mér að setja saman húsgögn, hengja upp gardínur, tengja þvottavél og ég veit ekki hvað og hvað... takk takk takk

Hvað haldiði samt að ég sé búin að gera? Haldiði ekki að ég sé komin í Skemmtifélagið hér í bæ...! Í ár á að setja upp Bítla Show og verð ég ein af þátttakendum. Um helgina var þess vegna haldið söngnámskeið. hún Hera Björk koma alla leið úr Reykjavík til að leiðbeina okkur og það sem við skemmtum okkur vel. Ég hefði ekki trúað því hvað hún gat leiðbeint okkur vel. Allir bættu sig um amk 50% og voru flestir alveg nógu góðir fyrir.Sýningar hefjast í byrjun október og ég geri fastlega ráð fyrir að allir vinir mínir mæti Svalur Endilega pantiði miða sem allra fyrst...!!!!

Annars er nóg að gera í vinnunni... ráðstefna í lok október og allt á fulle farte...

jæja gott í bili
Sandra

Athugasemdir

1
Sandra skrifar:
P.s. ég er búin að setja inn svolítið af myndum :)
09. september 2008 klukkan 11:30
2
Pabbi skrifar:
Hjartanlega til hamingju með nýju íbúðina og heimilið þitt. Líð þér alltaf sem best kæra mín.
Auðvita verður þú flott söngkona...
09. september 2008 klukkan 15:22
3
solla skrifar:
jeij skemmtilegar nýju myndirnar af málarameistaranum hehe :) Þetta verður svaðalega flott ég efast ekki um það!!! Svo kíkjum við nú á showið, að sjálfsögðu :)

p.s.
hillan í ikea var bara til í hinum brúna litnum. Vonandi verðuru ánægð með "myndina" :)

Kær kveðja og farðu vel með þig sandra mín

Þín Solla

p.p.s
Syngja?? það er bara í blóðinu, þarf eh að ræða það frekar eða? tihihi
10. september 2008 klukkan 00:33
4
Sandra skrifar:
Takk takk elsku pabbi og Solla... :)

og Sólveig AÐ SJÁLFSÖGÐU mætiði á showið... 18 eða 25 sept væri td tilvaldir dagar ;)
10. september 2008 klukkan 08:24
5
Pabbi skrifar:
Sept???
Er showið ekki í frumsýnt 4. október?
Svo er frumsýning á Pétri Pan 18. okt... ef einhver vill koma.
11. september 2008 klukkan 16:28
6
Sandra skrifar:
Jú auðvitað meinti ég Október... erum ekki alveg svo miklir snillar að við getum frumsýnt eftir 10 daga frá fyrstu æfingu ;)
11. september 2008 klukkan 17:30
7
solla skrifar:
naunau mér sýnist okt stefna bara í mesta ferðamánuð ársins hehehe
11. september 2008 klukkan 18:02
8
Drifa skrifar:
Til hamingju med nyju ibudina!!! Vildi oska ad eg kaemist i heimsokn!!
13. september 2008 klukkan 15:05
9
Mćja frćnka skrifar:
blesssuð og sæl

vá til hamingju með þetta allt saman. !!! Íbúðin er svakalega flott og partýið hefur verið geðveikt stuð :)

Ég kem oft við hérna en er svakalega léleg að kvitta.. eiginlega jafnléleg að kvitta og ég er í því að blogga.. en það er svo sem annað mál :)

Hafðu það gott á Horó og ég bið að heilsa
16. september 2008 klukkan 16:49

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur