ReykjavíkurferđSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er ég kom á Höfn aftur eftir magnaði Reykjavíkurferð. Þvílíkt maraþon... Hnjúkurinn hefði örugglega verið pís of keik miða við þetta Glottandi

Ég mætti í borgina með flugvél Arna um klukkan hálf sjö að kveldi. Þá var ekkert annað í stöðunni en hefjast handa við að pakka niður dótinu mínu í kassa. Ég verð eiginlega að viðurkenna að það er stórmerkilegt að allt þetta dót hafi komist fyrir í litla appelsínugula hefberginu mínu... úffff....
Á laugardeginum hófst svo maraþonið fyrir alvöru. Ikea - Byggt og búið - (Kringlan og Smáralindin) - Rúmfatalagerinn og svo pakka öllu niður. Ég gaf mér nú smá tíma til að kíkja á ömmu og afa en þau eru nú flutt frá Króknum í bæinn í þessa fínu íbúð uppi í Norðlingaholti. Þau voru reyndar á leiðinni í 50 afmæli til Lindu svo stoppið var nú stutt. Þá var brunað í Álfatúnið á nýjan leik og pakkað niður. Solla og mamma áttu nú stóran hlut í því að verkið kláraðist nokkurnveginn... ég var orðin svo rugluð í toppstykkinu að ég snérist bara í kringum sjálfa mig. Um klukkan 22 héldum við Solla og Haffi svo niður á Miklatún á tónleika og svo á flugeldasýningu niðri við höfn. Þar hitti ég nánast alla sjálfboðaliðana og það sem það var gaman. Ótrúlegt hvað maður getur eignast marga góða vina á stuttum tíma... og svo þarf maður að kveðja þá. Mér finnst ég alltaf vera að kveðja fólk, búin að gera alltof mikið af þvi síðustu árin... Nei nei ég segi svona... ég á þá allavega heimboð um alla Evrópu og vísa gistingu hringinn í kringum Ísland... það er nú meira en margir Svalur

Á sunnudeginum var svo vaknað fyrir allar aldir og horft á leikinn ógurlega, þó svo að hann hafi nú ekki endað með sigri þá var gaman að horfa á hann undir sæng í lazy-boy stólnum hennar mömmu... Ég er óendanlega stolt af strákunum og þeir eiga fálka-orðuna fyllilega skilið eða eins og hún Ragna orðaði það svo vel í gær "Fólk er að fá fálkaorðuna fyrir að vinna vinnuna sína svo þeir eiga hana svo sannarlega skilið"

Nú bíð ég bara eftir að fá íbúðina afhenda, vonandi verður það fyrir helgina. Solla og Haffi koma í garðpartýið ógurlega á föstudaginn og það væri óendanlega hentugt að nota Haffa í að skrúfa saman húsgögnin á laugardaginn Ullandi 
Pabbi kemur svo á morgun til landsins með Norrænu og kíkir við hjá mér á leið suður og svo norður í land þar sem hann verður að leikstýra eins og í fyrra. Aðstæður verða nú örlítið öðruvísi hjá honum þetta árið, þar sem hvorki amma, afi né ég verðum fyrir norðan... En við erum þó amk á sma landinu Brosandi

Jæja best að fara að gera eitthvað
yassou
Sandra

Athugasemdir

1
solla skrifar:
úúú fæ bara gæsahúð þegar þú skrifar yassou :D langar svo aftur til Krítar :)
jújú hafþór getur sko alveg skrúfað saman nokkur húsgögn (ein góð að ákv. fyrir hann hehe)

Já þeir unnu sko sína vinnu vel og eiga hana fyllilega skilið, er alveg sammála ykkur :)

Jæja, heyrumst, svo sjáumst við á föstud.kv. vúhú!

Þín, Solla
26. ágúst 2008 klukkan 18:03

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur