HANDBOLTISandra Björg Stefánsdóttir
Ég verð nú bara að viðurkenna að ég hef ekki þorað að tjá mig um gengi íslenska landsliðsins á ólympíuleikunum af ótta við að þeir færu að klúðra þessu (talandi um hjátrú) en nú get ég bara ekki orða bundist!!!!!
ÚRSLITALEIKURINN!!! ERUÐ ÞIÐ AÐ GRÍNAST???
Nú held ég að það sé bara ekkert annað í stöðunni en að drífa í því að giftast honum Fúsa mínum....

Ég dreif mig heim í hádeginu í dag til þess að ná leiknum. Elín Ása var hjá Rögnu Steinunni vinkonu sinni og Ragna og Heiðar fyrir sunnan þannig að við Anna Regína vorum bara tvær að hvetja liðið áfram... eða það hélt ég. Þegar 5 mín voru liðnar af leiknum og ég fékk spurninguna "Hvort erum við í rauðum eða hvítum búningum?" þá varð mér ljóst að ég væri líklega eini aðdáandinn í Fákaleiru 8c þá stundina! En strákarnir UNNU með glæsibrag og ég er viss um að það voru fleiri en þeir sem grétu af fögnuði

Kíkiði endilega á það hvernig strákarnir fagna...
HÉR Fréttamennirnir á FOX kunna sko að meta hann Fúsa minn....
HÉR Já og eitt enn... hver man ekki eftir Sollu og Bjögga hér í denn? Solla systir, stráka-stelpan ógurlega sem átti bara stráka vini var eiginlega alltaf með honum Bjögga. Sá Bjöggi er enginn annar en landliðsmarkvörður okkar íslendinga í dag og er að gera GÓÐA hluti... Greinilegt að Solla hefur kennt honum eitthvað

TIL HAMINGJU STRÁKAR OG ÍSLENDINGAR ALLIR!!!
Annars er ég að fara að skella mér til borgar óttans. Tek flugvélina á eftir og fer svo aftur til baka á sunnudag með Rögnu og Heiðari. Ég geri alls ekki ráð fyrir að hitta marga í þessari stuttu ferð þar sem aðsetur mínar verða aðallega í IKEA... Nema náttúrurlega ef allir skella sér niður í bæ á Menningarnótt og hitti mig við götuljósin á lækjargötu - Bankastræti kl 19.37

bless kex ekkert stress
Sandra
Hlakka til að sjá þig sæta.
- Solla