Hć hóSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá er ég mætt í vinnu á Höfn á nýjan leik. Síðustu vikur hafa verið ansi viðburðaríkar eða ætti ég heldur að segja að á síðustu vikum hef ég verið á ferðinni eins og óð manneskja um sveitir landsins.Við Sigrún Inga þvældumst á Klaustur, Skaftafell og Jökulsárlón með skoðunarkönnunina okkar svakalega. Á lóninu nutum við leiðsagnar hans Kidda frænda sem rak okkur áfram með harðri hendi. Fyrir ykkur sem þekkið ekki til þá er Kiddi 13 ára frændi minn frá Höfn. En vegna tilsagnar hans þá slógum við metið í fjölda kannana eða 202 kannanir á einum og sama deginum!!!
Þar síðustu helgi þvældist ég svo með Guggu,Sigga, Bjarma og Tómasi inn í Heinaberg og að veiða í Baulutjörn. Það endaði nú nokkuð spaugilega þar sem hluti annarar veiðistangarinnar endaði óvænt út í miðju vatninu, þá er ég að tala um hálfa stöngina, ekki bara öngulinn. Siggi þurfti á endanum að fletta sig klæðum og vaða á eftir gripnum, við ómælda gleði okkar sem á bakkanum sátum
Síðast liðinn fimmtudag fórum við starfsmenn Háskólasetursins á Höfn svo í göngu. Upphaflega var áætlað að fara inn Heinabergsdal og þaðan inn í Vatnsdal og skrá niður plöntutegundirnar sem þar finnast. Við fórum að vísu ekki lengara en inn Heinabergsdalinn og upp á hálsinn til að komast inn í Vatnsdal. Þar varð okkur ljóst að við færum ekki lengra nema með tjald með okkur því ferðin yrði að lágmarki 15 tímar með tímanum sem tekur að greina blessaðar plönturnar. Þess í stað tóku SIgrún Inga og Steinunn Hödd sig til og greindu hverja einustu plöntu uppi á þessum hálsi á meðan við Andreas klifum Geitakinn. Ég verð að viðurkenna að sjaldan eða aldrei hef ég orðin fyrir jafn miklum áhrinum af völdum íslenskrar náttúru. Þetta var stórfenglegt, jökullinn, fjöllin, dalirnir.... Ég elska Ísland!

Rúsínan í pylsuendanum var svo helgin sem var að líða. Hún byrjaði á að við Ragna, Heiðar og Hafsteinn gengum upp Efstafell inni í Geitafelli. Eftir það brunuðum við heima og horfðum á Ísland-Danmörk í handbolta. ÞVÍLÍK SPENNA. Rannveig og Ásbjörn komu við og horfðu með okkur á leikinn og það var eiginlega eins gott að þetta fór með jafntefli því annast hefði mjög líklega soðið uppúr á meðal áhorfenda í Fákaleiru 8c
Helgin endaði svo á því að Regína og Claus buðum öllum starfsmönnum sumarsins í mat inni í Náttúruskóla. Þar voru Eva og Hanna búnar að skreyta allt með birkigreinum og borðum, við sátum svo öll í sátt og samlyndi til að verða eitt í nótt og snæddum 3ja rétta dýrindis máltíð og spjölluðum og hlógum.
Frábær frábær frábær helgi sem var fullkominn endir á frábæru sumri.

Myndirnar eru komnar inn á myndasíðuna
bless í bili
Sandra
Athugasemdir
1
Gulli - 0765 skrifar:
"..endir á fullkomnu sumri.." - halló halló .. er sumarið BÚIÐ hjá þér??
20. ágúst 2008 klukkan 04:43
2
Sandra Björg Stefánsdóttir skrifar:
haha já sumarið í Skaftafelli er búið... en reyndar er það satt hjá þér, það kemur ekki haust fyrr en eftir að ég er búin að eiga afmæli Það eru fleiri myndir frá Endalausadal og Efstafellsgili inni á myndasíðunni hans Heiðars
http://heidarsig.net/index.php?option=com_wrapper&view=wrapper&Itemid=23
Þið megið svo alveg kvitta
20. ágúst 2008 klukkan 08:22
3
Harpa og Gabríela Ósk skrifar:
Mikið er gaman að heyra hvað sé gaman.....hreinlega er ég að deyja úr öfund :-)........já já sumarið er alveg að verða búið......sem er búið að vera alveg meiriháttar.
Have fun sweety ;-)
Knús og kossar
Harpa og Gabríela Ósk
Have fun sweety ;-)
Knús og kossar
Harpa og Gabríela Ósk
20. ágúst 2008 klukkan 10:30
4
Harpa og Gabríela Ósk skrifar:
Áfram Ísland :) og......þú verður að kvetja hann Fúsa þinn til gullverðlauna :)
22. ágúst 2008 klukkan 14:43
