SPSS úuuffff old memory
Elskan vig gongum hnjúkinn saman´2009. Tangad til verdum vid bara ad eyda tímanum
okkar í Laufskálarétt og fleira ;);)
Hlakka mikid til ad koma heim sæta
Knús knús
HvannadalshnjúkurSandra Björg Stefánsdóttir

Halló halló
Hér hafði ég fyrirhugað að skrifa grein um ferð mína upp á Hvannadalshnjúk síðasta mánudag, jafnvel setja inn mynd af mér skælbrosandi með ísexina á lofti á toppnum. Því miður mun ekki fara mikið fyrir þeim skrifum hér í dag. Síðasta sunnudag kom Einar Ísfeld í Skaftafell til að skoða leiðina upp á Hnjúkinn. Aðrir leiðsögumenn höfðu átt í erfiðleikum með að komast upp á topp og í rauninni ekki komist þangaði í meira en viku. Einar komst heldur ekki á toppinn. Jökullinn er of sprunginn og of hættulegur þannig að það var hætt við ferð mánudagisns og raunar allar ferðir sumarsins. Fjallaleiðsögumenn munu sem sagt ekki fara aftur upp á Hnjúk fyrr en það hefur snjóða duglega uppi á toppnum. Við vorum svo svekktar að við gátum varla talað. Í staðinn buðum við fjalló í Sandasel þar sem við spiluðum Partý og co og Trivial fram á nótt. Það var reyndar alveg rosalega gaman.
Á mánudeginum fórum við Rannveig og Ásbirnir-nir tveir frá Danmörku í göngu í Skaftafelli. Planið var að fara upp á Kristínartinda en skýin voru eitthvað langt niðri þannig að við fórum bara upp að Sjónarnípu, Svartafoss og enduðum svo í Lambhaga. Við tókum líka fullt af hoppu-myndum sem eru allar komnar inn á myndasíðuna mína
Þessa vikuna hef ég svo verið á Klaustri og í Skaftafelli að vinna. Við á Háskólasetrinu erum að gera skoðanakönnun um Vatnajökulsþjóðgarð, viðhorf og skoðanir ferðamanna á honum o.s.frv. Það á svo eftir að koma á daginn hvort við getum unnið úr þessu.... SPSS... úfffff
jæja gott í bili
Sandra
Athugasemdir
2
Pálína skrifar:
09. ágúst 2008 klukkan 18:36
3
Sandra skrifar:
hehe Nancy mín, árið 2006 var ég hvorki andlega né líkamlega tilbúin til að fara upp á Hnjúkinn ;) en jábbs Pálína við erum svo sannarlega að fara næsta vor :)
Takk fyrir samúðar-SPSS-kveðjurnar
Takk fyrir samúðar-SPSS-kveðjurnar
09. ágúst 2008 klukkan 22:42
4
helga erla skrifar:
Hæ hæ..... Mikið svakalega er gaman að skoða myndirnar hjá þér Sandra mín.... Sumarið er ábyggilega búið að vera frábært hjá þér eins og von er víst við alla þessa útiveru í íslenskri náttúru :) Hafðu það gott og gaman í nýja starfinu sem er ekkert smá spennandi ...
Knús og kram úr Kefló
Knús og kram úr Kefló
18. ágúst 2008 klukkan 11:19

Þú hefðir átt að koma með okkur Villý árið 2006 ;-)
En já, SPSS- alveg sammála, úff....ég geri ekkert annað en að vinna með þessu núna....stundum tekst það.
Jæja, kannski best að halda áfram að "leika" mér með tölunum ;-)
Kveðja frá Greifswald,
PS: "Ég treysti engri tölfræði sem ég hef ekki búið til sjálf"...eða þannig...:-)