Hæ skvís.....það er aldeilis dugnaðurinn í minni...bara ganga á hverjum einasta degi :D
Eigðu góða verslunarmannahelgi sæta og endilega skelltu þér á þetta ballerí :)
Heyrumst
Þín Solla
MyndirSandra Björg Stefánsdóttir

Þá eru myndirnar frá Landsmóti hestamanna komar inn á myndasíðuna, ég var alveg viss um að ég væri búin að setja þær inn en svo var víst ekki. Merkilegt nokk að þó að það hafi ekki verið þverfóta fyrir Hólafólki þarna (sem er mjög gott
Það voru líka fullt af Króksurum þarna sem vita varla hvað snýr fram eða aftur á hesti... en Skagfirðingar láta ekki svona vígalegt djamm framhjá sér fara, ekki frekar en ég sjálf
Héðan frá Höfn er allt gott að frétta, ég er að reyna að drössla sjálfri mér út að labba á hverjum degi og ná mér í smá þol svo ég verði ekki eftir í göngunni miklu í Skaftafelli næst mánudag...!
Hadda Hrund og Doddi og Sóley og Rafn ætla að hitta mig í Skaftafelli um helgina... útilega en ekki útihátíð... jubbííí... Að sjálfsögðu eru allir velkomnir að slást í hópinn. Mér skilst að það sé ball á Klaustri á laugardeginu og það er aldrei að vita nema maður skelli sér þangað!

Eftir helgina verðum við Sigrún Inga (á Háskólasetrinu) á ferðinni um suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Við munum leggja könnun fyrir ferðamenn á svæðinu. Rosa stuð!
Jæja þá er það gott í bili
Sandra

Knús og kossar
Harpa og Gabriela