Höfn in HornafjörđurSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er ég flutt á Höfn í Hornafirði. Sem stendur bý ég hjá Rögnu og Heiðari og verð hér út ágúst mánuð.Þetta er náttúrulega alveg rosalega fínt, enda alltaf stjanað við mann eins og maður sé prinsessan á bauninni hér í Fákaleirunni.
Síðasta kvöldið mitt í skaftafelli grilluðu stelpurnar mér til heiðurs í Landvarðahúsinu. Þetta var alveg yndislegt kvöld og við átum og átum og átum... jiii minn eini þegar ég hugsa um það þá skil ég ekki hvernig við gátum torgað þessu öllu... sykurpúðar, hreindýraborgarar, pylsur, bananar með súkkulaði og svo súkkulaði/bananastangir í eftirrétt....!!!!! Takk fyrir mig snúllurnar mínar
Um síðustu helgi var svo ættarmót hjá ömmu Sollu og þar gat ég knúsað litlu ormana mína í marga daga í röð. Nú eru þau farin aftur Finnlands og ég sakna þeirra rosalega.
Ég er hægt og rólega að setja inn myndir á myndasíðuna sem þið megið endilega skoða.
bless í bili
Sandra
Athugasemdir
1
Eyţór skrifar:
Frekar SAD myndir af mér þarna!!
16. júlí 2008 klukkan 00:47
2
Sandra skrifar:
hahahhaha menn voru mismunandi ferskir ;)
16. júlí 2008 klukkan 08:20
3
Adam o Anna skrifar:
Hae hae!
Sitjum á hotellinu í Helsinki og skodum myndirnar, gaman gaman.
Kossar og knús
Adam, Anna o Petra
Sitjum á hotellinu í Helsinki og skodum myndirnar, gaman gaman.
Kossar og knús
Adam, Anna o Petra
17. júlí 2008 klukkan 18:22
