Skaftafell... the endingSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja góðir hálsar, þá fer að líða að lokum dvalar minnar hér í Skaftafelli.Þetta hefur liðið svo ótrúlega hratt... sem þýðir að það er búið að vera voða gaman.
Við höfum ekkert verið að slaka á í djamminu undanfarið því við Rannveig og Stjáni fjalló skelltum okkur á Landsmót um síðustu helgi. Við vorum að vinna til rúmlega 5 á laugardeginum og brunuðum þá í vestur átt. Á sunnudeginum mættum við svo eldspræk í vinnu um kl. 8 um morguninn. Þetta var hverrar krónu og mínútu virði. Það var alveg frábært... hitti gjörsamlega alla!!! Fyrst sátum við í brekkunni með pabba, Petru, Önnu, Adam og Johanna og horfðum á skemmtiatriðin. Þegar kom að svefntíma hjá yngri kynslóðinni var farið á balla og svæðið skoðað. Jiiii hvað það var gaman... við Rannveig erum enn með aðgöngumiða-armbandið því við týmum ekki að taka það af....
Nú eru bara tveir vinnudagar eftir í Skaftefell city... ég á eftir að sakna þess að vera hér... eflaust á ég eftir að bruna hingað um hverja helgi til og áreita lýðinn...
Annars er ég komin með íbúð á Höfn!!!!!!!!! Fæ hana reyndar ekki fyrr en í lok ágúst, verð hjá Rögnu og Heiðari þangað til. aumingja Anna Regína og Elín Ása þurfa að láta af hendi herbergin sín til að stóra frænka geti flutt inn. Greyin.... vonandi get ég borgað þeim einhverntíman seinna...
bless í bili
Sandra
Athugasemdir
1
Rósa skrifar:
ég bíð alveg ótrúega spennt eftir myndum af landsmóti ;)
10. júlí 2008 klukkan 17:45
2
Pálína skrifar:
Vá en spennó allt sem er ad gerast. Hlakka til ad sja myndir snúlla
Knús knús
Knús knús
12. júlí 2008 klukkan 18:29
3
Harpa og Gabríela Ósk skrifar:
HAHAHAHAHA.....aldur hvað????? ;-) láttu ekki svona :-)
knús og kossar
knús og kossar
14. júlí 2008 klukkan 21:46
