Hæ hæ sæta
Eg var ad senda ter sms og akvad svo ad kikja a bloggid.
Mikid er eg anægd hvad er gaman hja ter. Fræbært !!!!
Hlakka til ad koma i heimsøokn í haust.
Knus knus fra Grænlandi
Skaftafell citySandra Björg Stefánsdóttir
Halló halló góðir hálsar,Þá er ég komin í Skaftafellið. Þetta er alveg yndislegur staður og heilmikið gaman hjá okkur. Ég verð mest í móttökunni, þannig að það er nettur Bifrastar fílingur á minni... En ég fer líka í göngur með fólk inn að jökli og svartafossi. Um helgar verð ég svo með barnastundir. Mér finnst þetta bara gaman. Fullt af hressu fólki. Ég bý í herbergi með Rannveigu sem er frá Klaustri og með okkur í húsi er hún Hanna finnska. Við búum í húsi sem heitir Sandasel (ég gat ekki munað það fyrstu dagana... lærði það með því að minna mig á að þetta væri næstum því sama orð og ég heiti... Sandra sandur) Við erum svolítið vestan við tjaldstæðið, svona 15 mínútnar röllt inn að Skaftafelsstofu. Það er mjög kósi að komast aðeins úr vinnunni... þurfa ekki alltaf að vera á tánum því það eru gestir allstaðar. Ókosturinn er samt sem áður að það er nánast ekkert símasamband í húsinu. Ef síminn er úti í glugga í einu herberginu næst eitt strik sem þýðir að ég get tekið á móti smsum. Aftur á móti er síminn minn líka vekjaraklukka þannig að ég verð að hafa hann hjá mér á nóttunni og þess vegna er ég out of reach á ókristilegum tíma...
Ef einhverjum dettur sem sagt í hug að senda mér sms þegar ég er sofandi þá þýðir það ekki því
ég fæ ekki þau skilaboð... só sorrí...!
Engu að síður er símasamband rétt fyrir utan húsið og að sjálfsögðu á tjaldstæðinu og þar. Ég er líka í mjög óreglulegu netsambandi en reyni að láta vita af mér öðru hvoru...
Eins og þið heyrið (eða lesið) þá er þetta eintóm hamingja í sveitinni. Í gær fórum við landverðirnir í skotbolta með sjálfboðaliðunum... ég get svo svarið það að það er bara gaman að vera svolítið barnalegur stundum. Í kvöld ætla sjálfboðaliðarnir svo að bjóða í grillpartý... GAMAN GAMAN GAMAN
Jæja gott í bili,
Hlakka til að fá ykkur öll í heimsókn...
Sandy
p.s. Allir að næla sér í bændablaðið... ég er víst þar
Athugasemdir
2
Palina skrifar:
14. júní 2008 klukkan 17:52
3
Ţórđur Ingi Bjarnason skrifar:
Skaftafell er fallegur staður og gaman að vera þar. Gaman a heyra að þér líkar vel þarna.
Lít kannski við hjá þér í sumar.
kv
Þórður Ingi
Lít kannski við hjá þér í sumar.
kv
Þórður Ingi
17. júní 2008 klukkan 08:54

en gott að heyra að þér líkar svona vel :)
Ég er búin að reyna 2 að senda þér multimedia sms með mynd af james blunt...mín var sko upp við sviðið og gott ef ekki bara meikaði æ kontakt hehe!
endilega láttu mig vita hvort þú hafir fengið það eða ekki skvís.
Heyrumst
þín solla