Mer finnst tu ekki nægilega dugleg ad setja inn frettir af ter kona !!!!!!!!!!
KOMA SVOOOOO
Knus knus
Halló hallóSandra Björg Stefánsdóttir
Takk fyrir allar góðu kveðjurnar gott fólk 
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLI ELSKU PABBI OG PETRA
Um síðustu helgi lagði ég land undir fót og skellti mér austur á Höfn. Háskólasetrið var með námskeið um friðuð svæði á Íslandi þar sem marstersnemar í HÍ skelltu sér austur. Ég skellti mér með til að ræða betur við Þorra og taka stöðuna á íbúðarmálum og þess háttar. Eitthvað hafði ég misskilið upplýsingarnar sem ég fékk því Sandran mætti bara í gallabuxum og götuskóm en planið var víst að fara upp á jökul og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta bjargaðist nú allt saman því hún Ragna var svo góð að þræða bæinn þveran og endilangan og fá lánaðan búnað fyrir mig. Við fórum ss upp að Skaftafellsjökli, Fláajökli og uppá Skálafellsjökul. Voðalega gaman því þetta voru hinir hressustu krakkar.
Staðan á íbúðarmálum er nú ekki sú besta þar sem lítið sem ekkert er að leiguíbúðum í bænum. Ég bind þó vonir við að fá íbúð. sérstaklega þar sem nokkuð margar íbúðir eru til sölu sem henta mér ágætlega. Ég ætla mér nú ekki að fara að kaupa en þar sem fasteignamarkaðurinn er frosinn á Höfn eins og annarstaðar á landinu þá vona ég að seljendur sjái hag sinn í því að leigja mér íbúð í vetur í staðinn fyrir að láta íbúðirnar standa tómar.... Krossleggja fingur.
Á mánudaginn fer ég svo í Skaftafell því ég á að byrja að vinna þar á þriðjudaginn. Það lítur þá út fyrir að ég verði ekki mikið í Reykjavíkinni í bráð...
Í gær kvaddi ég Pálínu skvísu því hún flaug út til Kaupmannahafnar í gærkvöldi. Akkúrat núna er hún sennilega að lenda í Grænlandi. Vonandi verður þetta órtúlega gaman hjá skvísunni. Ég mundi nú samt helst vilja hafa hana hér hjá mér en það er náttla bara eigingirni
Þið getið fylgst með myndadagbókinni hennar inni á www.utivera.is
Við Solla skelltum okkur á Sex in the City í gær og þvílík snilld. Ég hló og grét og allt þar á milli. Aftur á móti er það staðreynd að ef fólki líkaði ekki við þættina þá finnst því sennilega lítið gaman að myndinni. Þetta er náttúrulega bara 3ja tíma langur þáttur. Ég sé ekki fram á að þessi mynd hljóti nein óskarsverðlaun en þó var eitt atriði í myndinni sem ég hreinlega missti andann yfir. Ég hef ekki orðið fyrir svona áhrifum síðan ég sá Sean Penn öskra "Is that my daugther in there" í Mystic River. Það var atriðið þegar Carrie og Big mættustu fyrir utan bókasafnið... Þið áttið ykkur á þessu þegar þið sjáið myndina
Nú er meira og minna allt dótið mitt komið í kassa, ekki að ég hafi átt eitthvað rosalega mikið dót en það sem ég á er komið í kassa. Appelsínugula herbergið er því fremur tómlegt þessa stundina...
Endilega kíkið svo á vef Bændablaðsins en þar er umfjöllun um BA-ritgerðina mína
Bless í bili Sandra

Athugasemdir
2
Palina skrifar:
13. júní 2008 klukkan 11:31

Gangi þér vel á nýrri braut, búin í skóla og farin að vinna. Það er mikill áfangi. Hlakka til að hitta þig í sumar.
Þinn pabbi