Til hamingju međ allt, ţetta er geggjađ;)
Útskrifuđ frá HólumSandra Björg Stefánsdóttir

Góðan daginn kæru vinir.

Veitt voru mörg verðlaun á hestabrautinni og ein af ferðamálabrautinni. Þau verðlaun voru veitt fyrir hæstu meðaleinkun útskriftarnema og hana hlaut ég sjálf J Litli lúðinn... ég veit J Þið getið einnig skoðað frétt inni á Hólasíðunni um útskriftina.
Um kvöldið héldu mamma og Þorbjörn heim í bæinn en við Solla og Haffi skelltum okkur í Júróvísíon partý til hennar Pálínu. Þar skemmtum við okkur og dönsuðum eins og enginn væri morgundagurinn. Ég held bara svei mér þá að þetta hafi verið skemmtilegasta partý sem ég hef nokkur tíman farið í. Gott að enda þessi þrjú frábæru ár í Skagafirðinum á svona góðum degi.

Á sunnudagsmorgun brunum við þrjú á Pollanum til Reykjavíkur en í Álfatúninu var haldin risa veisla í tilefni dagsins. Ég missti tölu á fjöldanum en held að þegar mest var þá hafi verið um 45 manns í íbúðinni. Að sjálfsögðu eru myndir inni á myndasíðunni minni frá öllu saman.
Nú tekur við nýtt tímabil hjá okkur útskriftarnemunum. Sem dæmi þá fer Pálína til Grænlands í næstu viku og verður þar í allt sumar að leiðsegja ævintýrafólki. Ég á eftir að sakna hennar svooooo mikið. Sjálf ferð ég að vinna sem landvörður í Skaftafelli 10. júní. Þar mun ég búa og starfa í mánuð og flytja svo um set hinu megin á landið, n.t.t. á Höfn í Hornafirði. Mér var boðin staða í Háskólasetrinu þar í bæ sem ég þáði að sjálfsögðu með þökkum. Vinnan mun felast í margskonar rannsóknar vinnu tengd hinum nýja þjóðgarði og hver veit nema ég nái að troða BA verkefninu mínu þar inní á einhvern hátt J
Jæja ætli þetta sé ekki orðið gott í bili
Knús knús
Sandra
Athugasemdir
1
Hulda Hildibrandsdóttir skrifar:
Til hamingju međ allt, ţetta er geggjađ;)
26. maí 2008 klukkan 17:58
2
Pálína skrifar:
Æðislegur dagur að baki. Ég segi eins og þú, það væri nú ekki leiðinlegt að spóla til baka og upplifa þennan dag bara allan again....
Sérstaklega fugladansinn hjá Haffa og Rakel MÚHAHAHHAHAHAHA
TIl lukku með DUXINN, snillingur á ferð.
Ég á eftir að sakna ykkar GEGGJAÐ mikið líka
Heyrumst tja líklega á morgun
Bæjó spæjó litli DUX
Sérstaklega fugladansinn hjá Haffa og Rakel MÚHAHAHHAHAHAHA
TIl lukku með DUXINN, snillingur á ferð.
Ég á eftir að sakna ykkar GEGGJAÐ mikið líka
Heyrumst tja líklega á morgun
Bæjó spæjó litli DUX
26. maí 2008 klukkan 20:35
3
Harpa og Gabríela Ósk skrifar:
Þú ert yndisleg og klár og það vita sko allir :-) og enn og aftur til hamingju með Duxverðlaunin:-)
Takk fyrir okkur á sunnudaginn...þetta var voða gaman þó að ég hafi ekki getað stoppað lengur með þá litlu.
Knús og kossar
Harpa og Gabríela Ósk
Takk fyrir okkur á sunnudaginn...þetta var voða gaman þó að ég hafi ekki getað stoppað lengur með þá litlu.
Knús og kossar
Harpa og Gabríela Ósk
26. maí 2008 klukkan 23:20
4
Sandra skrifar:
Takk fyrir mig snúllurnar mínar *knús*
Nú ættu myndirnar að sjást sem ég setti inn í færsluna, endilega látiði mig vita ef þær gera það ekki :)
Nú ættu myndirnar að sjást sem ég setti inn í færsluna, endilega látiði mig vita ef þær gera það ekki :)
27. maí 2008 klukkan 11:08
5
Sissa skrifar:
Innilega til hamingju með útskriftina :) Og auðvitað hæstu einkunina ;)
Frábær árangur hjá þér og þú mátt sko vera mjög stolt yfir þessu :)
Gaman að skoða myndirnar, partýið hefur heldur betur verið skemmtilegt ;) Góðar myndir af Sollu allavega hehehe
Gangi þér sem allra best í sumar og fyrir austan .. Vissi ekki að þú værir að fara þangað en það verður sko pottþétt ótrúlega gaman!!
Kveðja frá Danmörku - Sissa frænka

27. maí 2008 klukkan 11:41
6
Sissa skrifar:
Og já ég sé myndirnar núna í blogginu :)
27. maí 2008 klukkan 11:42
7
Pabbi skrifar:
Stoltastur af öllum af duxinum sínum.
Pabbsen
Pabbsen
27. maí 2008 klukkan 17:57
8
solla skrifar:
guð já sissa ömó myndir af mér hehe.... já fugladansinn hjá Hafþóri mohahahahaha!
Þetta var ótrúlega skemmtilegt og gaman að fá að vera með Sandra mínn :)
Þetta var ótrúlega skemmtilegt og gaman að fá að vera með Sandra mínn :)
27. maí 2008 klukkan 21:19
9
Saga í Uppsala skrifar:
Svo innilega til hamingju með gráðuna og verðlaunin beibs :D
28. maí 2008 klukkan 12:33
10
Drífa skrifar:
ohhh sæt mynd af þér:)
Enn og aftur til hamingju elsku besta sandra!! Ég hefði sko viljað kíkja í útskriftina þína.. en ´sumarið hljómar mjög skemmtilega hjá þér ég vona að ég fái að sjá þig í september eða bara sem fyrst!
Á morgun á ég að verja ba-ritgerðina mína um Revenue Management.. aaarrrrrgggghhh
sakna þín,
giorgio

04. júní 2008 klukkan 08:33
11
Helga skrifar:
Hæ elsku Sandra mín og enn og aftur til hamingju með útskriftina. Þetta var frábær dagur á Hólum, gaman að skoða myndirnar þínar, þær eru geggjaðar... Það hlýtur að hafa verið ansi mikið fjör um kvöldið hjá ykkur ... Til hamingju með störfin sem þú ert búin að landa.. Við kannski sjáumst í sumar á ferðinni... Svo erum við farin að venja komur okkar í Hornafjörðinn á Hoffellið reglulega svo það er aldrei að vita að við hittumst fljótlega og náum að spjalla aðeins betur saman..... Hafðu það gott skvís í sumar.... Risa Risa knús úr kefló
12. júní 2008 klukkan 10:48