Hć hóSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er kominn tími til að blogga smá JÍ síðustu viku ákvað ég að skella mér norður um heiðar í grillpartýið ógurlega sem haldið er á hverju ári. Um daginn var ráðstefna um útikennslu sem hjónakornin Kobbi og Vanda stóðu fyrir. Þetta var alveg yndisleg ráðstefna, við fengum m.a. að kynnast útikennslu í Smáraskóla en þar ganga nemendur í 8. bekk Laugarveginn og hjóla svo Fjallabak nyrðra og Fjallabak syðra í 9. og 10. bekk. Ég er ekki frá því að ég muni flytja í Smárann þegar og ef ég eignast börn því þetta er svo sannarlega eitthvað sem ég hefði viljað upplifa í grunnskóla. Endilega kíkiði inn á heimasíðu ráðstefnunnar www.utikennsla.is.
Um kvöldið var svo grillpartýið mikla J Reyndar var það muuuun fámennara en síðustu ár (hver sá eiginlega um skipulagninguna? J) en eins og orðtakið segir “fámennt og góðmennt”. Hér er ein mynd sem ég tók í tilefni dagsins J 
Að sjálfsögðu eru fleiri myndir inni á myndasíðunni minni.
Daginn eftir skellti ég mér í klippingu og spara mér þar með nokkra þúsundkalla en það er mun ódýrara að fara í klippingu á Króknum en í bænum. Nú er ég ss orðin rauðhaus... Eða sko, mig hefur lengi langað í hár eins og hún Annar Regína frænka mín er með. Ég hef nokkrum sinnum reynt að fá þann lit en oftar en ekki endað með fjólubláan haus! Þó að liturinn sé ekki eins og hjá Önnu Regínu þá er ég mjög sátt... verst að sléttunin dugði bara í einn dag en hér sjáiði hvernig ég leit út nokkrum mínútum eftir að Rabbý fór höndum um kollinn á mér.

Þessa vikuna hef ég verið að vinna hjá Kambi til að næla í nokkrar krónur áður en ég fer í Skaftafell 10. júní.
Síðast en ekki síst þá mun ég útskrifast frá Háskólanum á Hólum næsta laugardag kl.15. Að sjálfsögðu eruð þið öll velkomin þangað og gleðjast með mér J Nú er þetta sem sagt í alvöru að verða búið. En þetta verður gleðistund og tárin bíða þar til seinna. Ég er búin að fá ritgerðina mína til baka og er mjög sátt við bæði einkunnir og athugasemdir J
Jæja gott í bili
Sandra
Athugasemdir
Ég get varla trúað því að þið eruð að útskrifast á laugardaginn...
TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ!!!
Ég er stolt af því að hafa verið saman með ykkur hólapæjum í bekk sko :-)
Þó ég kemst ekki í útskrift þá máttu trúa því að ég hugsi til ykkar á þessari stund og verð hjá ykkur allavega í anda :-)
Puss & kram,
Nancy
kveðja og knús, drífa
geggjađ hár, rabbý er snillingur ;)til hamingju međ ritgerđina og allt ţađ, ég verđ hjá ykkur í huganum á laugardaginn;)


Hjartanlega til hamingju með áfangann ;-)
Sjáumst svo í Álfatúninu á sunnudaginn.
Knús og kossar
Harpa og Gabríela Ósk