BÚIN AĐ SKILA!!!Sandra Björg Stefánsdóttir

Jæja góðir hálsar þá er ég búin að skila ritgerðinni miklu!!!! Jáhá ég veit að þið trúið því ekki. Þessi merki áfangi átti sér stað í gærkvöldi. Það tók ekki nema um tvo tíma að ýta á “senda” takkann. Á þeim tíma átti ég samtöl við nokkra mjög (ó)heppna einstaklinga sem fengu það hlutverk að peppa mig upp og viti menn... á endanum tókst þetta allt saman og ritgerðin er farin til prófnefndarinnar J

Í tilefni af þessu gengum við Solla, Sóley og Lilja gegn slysum í dag. En það er ganga á vegum hjúkrunarfræðinga á Landsspítalanum þar sem þeirra er minnst er slösuðust og létust á síðasta ári í umferðinni. Veðrið lék við okkur og ég get svo svarið það að ég gekk í stuttermabolnum alla leiðina frá Landsspítalanum að Borgarspítalanum. Í göngunni gekk ég samferða ákveðinni krúnurakaðri löggu sem ég eyddi heilu sumri í að glápa á hér í gamle dage. Hef nú reyndar ekki hugmynd um hvað kauði heitir en þetta voru ákaflega skemmtilegir endurfundir J

Í kvöld fórum við Sóley og Lilja á tónleika til styrktar Blátt áfram. Virkilega góður málstaður sem við ættum öll að hugsa um. Ekki var verra að tónlistin var GEGGJUÐ. Bermúda – Einar Ágúst – Rúnar Júl – Sverrir Bergaman – Á móti sól –  Buff - Sálin hans Jóns míns – Ný Dönsk ofl. Ég skemmti mér mjög vel. Við stelpurnar fengum þvílíkt nostalgígju kast þegar Ný Dönsk steig á sviðið. Daníel Ágúst er aftur gengist til liðs við bandið og þó maður hafi talið sjálfum sér trú um að þeir væru alveg frábærir án hans og að maður saknaði hans ekki baun  þá sá maður strax að bandið er 10.000 sinnum betra með hann innanborðs. Þá er ég ekki að lasta neinn annan í bandinu, það mætti ekki missa neinn þeirra! Börn og aðrir minna þroskaðir menn dundu í hátölurunum og ég fékk gæsahúð miður í tær... MK-minningar flæddu svoleiðis yfir mann.

Þegar Buffið var að spila fann ég enn einn mann sem ég ætla að giftast. Já ég veit, ég er að verða komin með einn eiginmann fyrir hvern dag sem ég á eftir ólifað en það er bara betra. Fá smá tilbreytingu í þetta...! Pétur Jésú er sá nýjasti. Kallinn er BARA flottur þegar hann gaular þetta með sinni undur fallegu rödd sinni, í rokkara fötunum sínum. Mér hafði bara yfirsést þetta þegar hann er í sínu aðalstarfi, bakraddasöngvari Íslands síðustu 3 árin... hehe

Þegar Á móti sól voru að spila var mér litið til hliðar og hver helduru að hafi þá staðið við hliðina á mér? JENNI í BRAINPOLICE! Hjartað í Söndru litlu tók eitt stórt stökk. Ég vissi ekki að þeir myndu spila þarna. Greyið Sóley og Lilja voru alls ekki að fíla raddböndin í þessum tilvonandi eiginmanni mínum en héngu engu að síður með mér til loka kvöldsins svo ég gæti notið þess að horfa og hlusta á kauða. Þetta voru alveg æðislegir tónleikar og grúppían í Söndru (sem ég er löngu hætt að reyna bæla niður) fékk algera útrás. Ekki versnar það nú við þá staðreynd að þetta var til styrktar Blátt áfram og rann allur ágóðinn óskertur til samtakanna J

Jæja ætli þetta sé ekki gott í bili...
Sandra kveður

Athugasemdir

1
Pálína skrifar:
Vúhú nýtt blogg !!!!!!!

Ánægð með þig :)

Ég er líka ánægð með mennina sem þú ætlar að giftast, ég er alltaf orðin örlítið spennt að opna bloggið og sjá hver verður heppin ungur maður í dag. Sem Sandy hefur íhugað giftingu með......ÞÚ ERT FRÁBÆR

njóttu dagsins,,, ég hef eiginlega ekki grænan hvað ég á að mér að gera heheheh

Knús knús
09. maí 2008 klukkan 11:49
2
Harpa skrifar:
Hæ hæ skvís,

Hjartanlega til hamingju með skilin og þú ert algjör hetja :-)
Ég verð nú að taka undir með Pálínu hverjum þú ætlar að giftast hverju sinni og maður bíður spenntur að opna bloggið ;-)..........en hættu nú alveg.......en Jesús Pétur ekki velja hann!!!! .......haltu þig við handboltastrákana eða löggustrákinn sem við báðar þekkjum. Svo má ekki gleyma eða loka á grúppíugenið.......það verður að halda því gangandi ;-)

Knús Harpa og Gabríela Ósk
09. maí 2008 klukkan 12:58
3
Elín Sig. skrifar:
Til hamingju
Sjáumst á Hólum
Ella G
09. maí 2008 klukkan 13:37
4
Sandra skrifar:
hehe ég skal reyna að halda áfram að finna mér eiginmenn... allt að gerast í bloggheiminum ;)

Palla mín ég vona að þér sé ekki farið að leiðast... spurning um að fá Sakkann í einhverjar framkvæmdir... nú þegar eldhúsið og BA búið þá hafiði náttla EKKERT að gera ;)

Takk Ella mín og til hamingju sömuleiðis með að vera búin í prófum :)
10. maí 2008 klukkan 11:33
5
Hulda HildibrandsdóttirTil hamingju međ ritgerđina;)
ég skil ţig vel međ ţessa söngvaraţrá, söngvarar eru heavy SEXY...ţangađ til mađur hittir ţá í eigin persónu, ţá eru ţeir ekki alveg eins heillandi hehehehe...!!!
11. maí 2008 klukkan 01:09
6
Sóley skrifar:
Það var bara gaman á fimmtudaginn...algjrö snilld að vera með þér á tónleikum! og nei... okkur lilju leiddist ekkert þegar heilalögreglan steig á svið.. ég skemmti mér amk konunglega bara að fylgjast með þér skvís! En nú bíð ég bara eftir að þú komir i heimsókn eins og við töluðum um :p
11. maí 2008 klukkan 11:01
7
solla skrifar:
hvenær koma eiginlega myndir frá göngunni Sandra mín?? Takk fyrir skemmtilegan dag :)

Góða ferð á morgun.

Kveðja
Solla
14. maí 2008 klukkan 20:21
8
Drifa skrifar:
Til hammara med skil kjutipae! :) (hah, oh gud, thessi setning, eg er greinilega enntha ad skrifa mina)
knus, drifa
16. maí 2008 klukkan 09:16
9
Hrefna skrifar:
Til hamingju með skilin. Þýðir þetta að maður fær að sjá meira af þér núna eða ættlarðu ennþá að vera í felum :)
16. maí 2008 klukkan 10:51
10
Pálína skrifar:
Bíddu halló
ertu hætt að blogga kona????????

Líst eiginlega ekkert á þetta :O)
20. maí 2008 klukkan 21:24
11
Sandra skrifar:
heheh það er allt að fara að gerast ;)
21. maí 2008 klukkan 17:36

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur