Mótmćli og RokklandSandra Björg Stefánsdóttir
Nú er önnur lota í BA skrifum gengin í garð og er ég flutt niður á Þjóðarbókhlöðu. Skrifin ganga bara alveg ágætlega og þó ég efist um að það sé nokkuð vit í því sem ég segi þá skrifa ég engu að síðurÍ hádegis kaffinu mínu í dag kíkti ég inn á mbl.is og ég verð að viðurkenna að það fauk bara í mig að sjá fyrstu fréttina. Bílstjórar farnir að kasta grjóti í lögregluna. Hvað halda þeir að þeir séu? Fyrir síðustu mánaðarmót var samúðin farin að minnka hjá mér í garð atvinnubílstjóra en núna er ekki vottur eftir af henni. Ég neita að skrifa mitt nafn undir svona fáránleg mótmæli. Þeir segja að allur almenningur hafi hag af þessum mótmælum þeirra en þá vil ég frekar hafa bensínverðið eins og það er og berjast á málefnalegum nótum. Kasta grjóti í lögreglumenn sem eru ekki að gera neitt annað en að sinna sinni vinnu, passa að lögum og reglum sé fylgt í landinu. Mín samúð liggur hjá lögreglumönnum og þeim einstaklingum sem lenda í umferðartöfum vegna þessara mótmæla.
Þessir atvinnu bílstjórar ættu að skammast sín!!!
Nú í öðrum fréttum er það helst að undur og stórmerki gerast enn. Það er ekki vika síðan umræðan í fjölskyldunni minni snérist um það að hún Sólveig Stefánsdóttir systir mín má ekki taka þátt í happdrætti eða bingói án þess að vinna stærsta vinning. Hún var á gangi í skólanum sínum fyrir nokkrum vikum og var boðið að taka þátt í einhvers konar happdrætti þar sem hún átti að snúa lukkuhjóli. Stúlkan ætlaði nú ekki að nenna að taka þátt (það er svo þvingandi að vinna alltaf) en lét til leiðast og snéri hjólinu. Að sjálfsögðu vann hún fyrsta vinning... splunku nýjan og flottan GSM síma!!!!! Það er kannski óþarfi að taka fram að ég er alger andstæða systur minnar. Ég vinn ALDREI neitt... þegar við vorum litlar man ég að það var kvöl og pína fyrir mig að fara með systur minni í bingó... Nema hvað!!! Í janúar tók ég þátt í leik í Rokklandi á RUV. Óli Palli spilaði eitthvað lag og spurði hvern nafn lags og flytjanda væri. Ég ákvað að senda honum email með réttu svari þó ég vissi full vel að þeð þýddi ekkert nema ég fengi hana Sólveigu til að senda fyrir mig. Nema hvað, í gær fékk ég tölvupóst frá Ólafi nokkrum Páli þar sem hann bað um heimilsfang mitt til að geta sent mér Rokkland 2007 geisladiskinn. ÉG VANN....!!!!!
jæja gott í bili
Sandra
Athugasemdir
2
Sandra skrifar:
Já eins og ég sagði á þínu bloggi þá er ég ósammála þér því ég held að það séu bílstjórarnir sem hleyptu öllu upp í bál og brand en ekki lögreglan. Þá er ég ekki að meina að lögreglan sé heilög og geri allt rétt, heldur að bílstjórarnir eru búinir að ganga allt of langt. Það kom fram í íslandi í dag á stöð 2 að Lögreglan var búin að reyna að tala við bílstjórana og segja þeim að nú þyrfti þetta að stoppa því það væru svo margi komnir sem áttu ekki heima þara "góðkunningjar lögreglunnar" og smákrakkar en þeir létu ekki segjast og svo fór sem fór.
23. apríl 2008 klukkan 20:23
3
Ţórđur Ingi Bjarnason skrifar:
Ég er sammála þér að þetta sé farið að gagna svolítð langt en ég held að lögreglan hafi mist stjórn á þessu með að nota táragas. Þá hentu þeir olíu á eld. Miðað við sögn bílstjóra þá voru þeir að fara þegar almennignur fór út á götu og tafíð að þeir gætu allir farið. þegar þeir ætluðu að færa bílal aftur þá kom gasið og eftir það varð allt stjórnlaust.
24. apríl 2008 klukkan 07:45
4
Nancy skrifar:
Gleðilegt sumar :-)
24. apríl 2008 klukkan 09:58
5
Sandra Björg Stefánsdóttir skrifar:
Ég held að það þýði ekkert að ræða þessa hluti meira... Fólk er ósammála og það er endalaust hægt að vera að hníta í hinn aðilann. Besta lausnin er held ég bara að vera sammála um að vera ósammála og vona að þetta ástand fari að leysast því ég held að það geti allir verið sammála um að þetta eigi að fara að enda. Gleðilegt sumar öll sömul



24. apríl 2008 klukkan 10:04
6
Ţórđur Ingi Bjarnason skrifar:
Sandra nú hef ég skift um skoðun á þessu máli. Í dag fóru bílstjórar yfir strikið og minn gamli vinnufélagi barði löggu sem er ekki gott
24. apríl 2008 klukkan 22:52

Sambandi við mótmælilnn þá voru þetta ekki bílstjórar sem kostuðu grjóti og eggjum í lögregluna. þetta voru ungir krakkar sem hópuðust þarna til að vera með æsing en það bitnar á málstað bílstjóra. Ég vona að bílstjórar haldi áfram því það mun koma okkur öllum til góða. En ég er hræddur um að miðað við hvernig lögreglan misti þetta í dag þá mun allar aðgerðir í framtíðinni vera mun harðari sem er ekki gott.
En ég stið bílstjóra samt áfram.