KLIFURSKÓR....!!!!Sandra Björg Stefánsdóttir

Hvað haldiði?
Hún Sandra Björg var að fjárfesta í klifurskóm hvorki meira né minna. Ég ákvað að þetta gengi ekki lengur og brunaði niður í Klifurhús til að kaupa skó. Svo þurfti að sjálfsögðu að vígja skóna... Þannig að nú sit ég hér með vel pumpaða handleggi og kramdar táslur. Gerist ekki betra Svalur 

five.ten
 

skórnir í aksjón


Annars er ég búin að vera að vinna hjá Kambi síðustu vikuna, gott að næla sér í smá pening svona þegar maður er á hvínandi kúpunni... Nú er ritgerðin komin til baka frá Guðrúnu Þóru og því flyt ég aftur niður á Þjóðarbókhlöðu á morgun. Eitt eða tvennt sem þarf að laga og breyta...

Pabbi var líka á landinu í síðustu viku og auðvitað hitti ég kallinn eins og ég gat þó það hefði mátt vera svolítið meira. En það eru nú "bara" tveir mánuðir þangað til að hann kemur aftur... og þá koma þau öll Brosandi

Ég sé það að ég verð að halda áfram að tjá mig um tilvonandi eiginmenn mína til að fá viðbrögð.... ólíklegasta fólk fór að tjá sig um áhuga minn á karlpeningnum... hehehehe

Gott í bili
Sandra

Athugasemdir

1
Nancy skrifar:
Vá, hverju missti ég eiginlega af hérna....en jamms alltaf gaman að lesa fréttir af þér og tilvonandi eiginmenn ;-)
Til hamingju með klifurskóm :-)
20. apríl 2008 klukkan 20:49
2
Sandra skrifar:
Solla og Haffi voru að trúlofa sig!
Þau settu upp hringa á laugardaginn en þá áttu þau 5 ára afmæli.
Til hamingju með þetta elsku Solla og Haffi :)
21. apríl 2008 klukkan 09:16
3
Þar sem mér finnst svo gaman að ræða strákamálin þín þá sendi ég þér link í gær með handboltagaur sem er á lausu :-) sendi það aftur núna (www.logi-geirsson.de ).....mátti til. Svo hafði ég sagt við þig í gær að hann héti Hreinn sonur Andreu Gylfa en hann heitir vís Bjartur.....en nóg um það haltu þig bara við hanboltagaurana :-)
Við öll sem kvittum hérna á síðunni erum örugglega öll sammála um það finna handa þér góðan gaur :-)
Knús til þín sæta mín :-)
22. apríl 2008 klukkan 10:23
4
solla skrifar:
takk elsku sandra okkar :)
Love love
þín solla
22. apríl 2008 klukkan 16:57

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur