takk fyrir kvöldiđ og til hamingju međ verđlaunin ;)
Árshátíđ HólanemaSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er ég stödd í Skagafirðinum enn á ný. Ég og Pollinn minn brunuðum norður í gær í sól og blíðu. Snjórinn var nánast alveg farinn fyrir utan smá krapa á heiðinni, þess vegna varð Pollinn alveg haugadrullugur. Í dag dreif ég þess vegna í því að baða gripinn... að innan sem og utan og nú er bann barasta glansandi fínn inni í bílskúr í BrekkutúninuÍ gærkvöldi var árshátíð Hólanema þar sem þemað var BLEIKT. Þið sem þekkið mig vitið að bleikur er nú kannski ekki alveg uppáhalds liturinn minn... en því var bjargað fyrir horn með því að binda litlar bleikar slaufur á spariskónna... verst ég þurfti að benda öllum á slaufurnar því enginn tók eftir þeim
Við skvísurnar hittumst heima hjá Ellu Gellu þar sem okkur var þjónað eins og við værum prinsessur... eins og!!! hvað er ég að segja??? Við ERUM prinsessur!!! Að sjálfsögðu mætum við fashionably late niður á Ólafshús sem hafði fengið bleika andlitslyftingu.
Kvöldið var hið skemmtilegasta og heppnaðist í alla staði vel.
Heyriði ég var næstum búin að gleyma...! Stúdentafélagið ákvað að verðlauna nokkra vel valda nemendur skólans... Helgi vann t.d. verðlaunin Ungfoli Hóla 2008 þar sem hann hefur nú verið ansi duglegur í vetur... Nema hvað... haldiði ekki að yours truely hafi fengið verðlaun fyrir að vera alltaf edrú á djamminu.... heheheh, ef ég hef einhvetíman roðnað þá var það þegar ég tók við verðlaununum þarna í gærkvöldi
Myndir frá kvöldinu koma in hvað á hverju...
Jæja þetta er orðið gott í bili
yassou
Sandra
Athugasemdir
1
Hulda Hildibrandsdóttir skrifar:
takk fyrir kvöldiđ og til hamingju međ verđlaunin ;)
06. apríl 2008 klukkan 20:17
2
Stjáni skrifar:
Mér fannst þetta algjört svindl og ég hef kunngert vonbrigði mín við þartilgerð yfirvöld. Ég hef m.a. beðið um að atkvæði úr ákveðnum kjördæmum verði talin aftur þar sem ég gruna þig um kosningasvik. Annars er þetta bara ósammáladeildin.. þú veist.. Stjórnarandstaðan!!!
07. apríl 2008 klukkan 22:57
4
Ţórđur Ingi Bjarnason skrifar:
Stjáni er ansi góður í stjórnarandstöðu.
09. apríl 2008 klukkan 12:44
