Hæ hæ....
Er sko alveg sammála þér með það sem þú varst að skrifa.....það þarf að taka á þessum málum og ég sko vel undir það með leiðiir fyrir sjúkrabíla.....þar sem maður á einn grallara sem gæti þurft á spítala í skyndi, þar sem hún er mikill fyrirburi.
Hafðu það gott og vertu dugleg að læra :-)
Knús og kossar
Harpa og Gabríela
Mótmćli vörubílstjóraSandra Björg Stefánsdóttir
Nú er kominn tími til að tjá sig um þessi mótmæli. Þetta er greinilega það heitasta í umræðunni.Að sjálfsögðu styð ég vörubílstjóra, þeir eru að mótmæla fyrir hönd okkar allra. Mér finnst þetta gott framtak. Engu að síður fer að líða að því að ég hætti að taka upp hanskann fyrir þá. Í fyrstu mótmælunum á fimmtudaginn síðasta var gagnrýnt mjög harkalega að þeir hefðu ekki samband við neyðarlínuna þegar þeir undirbjuggu mótmælin. Byrjendamistök??? Nei þeir læra ekki af reynslunni.
Hörðustu stuðningsmenn mótmælanna halda því fram að það séu alltaf aðrar leiðir opnar en þær sem þeir loka. En hvað gerist ef sjúkrabíll er á leiðinni með mann með hjartaáfall akkúrat á sama tíma og mótmælin hefjast? Hann lendir því í miðri þvögunni... þá hjálpar lítið að það sú aðrar leiðir opnar. Og það skal enginn halda því fram að það séu "aðrar" leiðir opnar þegar þeir loka Reykjanesbrautinni. Það vill þannig til að Hrefna vinkona mín er nýbúin að eignast barn. Hún átti á sjúkrahúsinu í Keflavík en barnið var mjög veikt og þurfti að komast á Landsspítalann strax! Það var því sett beint út í sjúkrabíl og keyrt til Reykjavíkur. Hvað ef brautin hefði verið lokuð vegna mótmæla vörubílstjóra. Hefði barnið dáið?
Eins og ég segi þá finnst mér frábært að Íslendingar eru hættir að láta kúga sig, en má ekki hugsa aðeins út í afleiðingar mótmælanna. Þarf virkilega einhver að skaddast alvarlega eða jafnvel láta lífið til þess að vörubílstjórar láti segjast?
Það þarf ekki annað en eina setningu í tölvupósti til neyðarlínunnar "Við ætlum að loka þessari og þessari götu klukkan þetta til klukkan þetta. Fariði aðrar leiðir með sjúklinga ykkar."
Sandra
Athugasemdir
3
Sandra skrifar:
Sigrún: Mér finnst mjög sérstakt ef lögreglan er að ljúga þessu öllu saman, sérstaklega afþví að það var tekið farm í öllum fréttatímum í gær að lögreglan hafi fengið að vita af mótmælunum á Ak og var vörubílstjórum hrósað mjög fyrir. Skil ekki afhverju lögreglan á höðufborgarsvæðinu ætti þá að vera að ljúga... En kannski finna þeir hvöt hjá sér til að gera það. Engu að síður þá er ekkert hægt að gera ef vörubílstjórar loka Reykjanes brautinni... hvað á löggan að gera þá? Eins og sást í fréttunum í gær, konu grey sem var að fá taugaáfall því pabbi hennar var að fá hjartaáfall... þar kom enginn sjúkrabíll við sögu. Hún þurfti að keyra á móti umferðinni hálfa leiðina en svo kom hún að bílalestinni... hvað þá? hún fór út í kant og keyrði á grasinu... það þarf samt engan snilling til að átta sig á því að hún kemst ekkert utanvegar alla leið til Reykjavíkur því röðin náði vel inn í bæinn...
Harpa og Gabríela: Nú fer vonandi að líða að því að ég komist í heimsók... :)
Harpa og Gabríela: Nú fer vonandi að líða að því að ég komist í heimsók... :)
03. apríl 2008 klukkan 09:42
4
Ţórđur Ingi Bjarnason skrifar:
Ég þessi mótmli hjá bílstjórum eru góð. Lögreglan veit vel af þeim því á föstudag þá lenti ég í töfum vegna mótmæla. ég hefið geta komist en ég stóð með bílstjórum og færði bílin minn þannig að það lokaðist ein afrein. Lögreglan var kominn á staðinn rétt áður en allt lokaðist. Þegar ég tók eftir vörubílunum þá var lögreglumótorhjól á næstu umferðareyju. og tveir lögreglubílar vour sitthvoru meignn við gatnamótinn. Á sama tíma sagði neyðarlínan að þeir hafi verið búnir að fara með sjúkarbíla út í hverfi til að liðka fyrir ef útkall kæmi. Hvernig gátu þeir verið búnir að fæar sjúkrabila í hverfinn og löggan kominn á staðinn ef þeir hefðu ekkert vitað. Svo ef útkall kæmi t.d á Reykjanesbraut þá myndu bílstjórar færa sig til að helypta neyðarumferð hjá. Ég stið þessi mótmli og vona að þau halid áfram þangað til að eitthvað fer að rofa til hjá ráðamönnum þjóðarinnar.
03. apríl 2008 klukkan 14:36
5
Sandra skrifar:
Það má vel vera að núna séu þeir farnir að hafa samband við lögreglu og neyðarlínu.
En ég fer ekki ofan af því að ég er alveg bit með Reykjanesbrautina... Ef við erum að tala um einhverja tugi... jafnvel hundruði bíla sem er stopp og komast ekki lönd né strönd þá tekur það engan 10 mínútur að liðka til fyrir sjúkrabíl... Tala nú ekki um að fólk heyrir ekkert í sírenunum fyrir flautum vörubílstjóra... Mér finnst líklegra að það tæki hátt í klukkutíma ef ekki bara nokkra klukkutíma fyrir sjúkrabíl að komast í gegnum alla þvöguna. Það gæti bara verið of seint fyrir sjúklinginn. Hvað þá? Á að hafa þyrlurnar tilbúnar? Hver borgar fyrir það?
Mér finnst þetta alveg farið að verða gott... Ég studdi þá fyrst og mér finnst málstaðurinn góður en þetta fer að verða gott. Það eru flestir að verða komnir með leið á þessu. Komast ekki í vinnuna í einn eða tvo daga... ókey.... en hátt í heila viku... þá er þetta bara orðið leiðinlegt...
En ég fer ekki ofan af því að ég er alveg bit með Reykjanesbrautina... Ef við erum að tala um einhverja tugi... jafnvel hundruði bíla sem er stopp og komast ekki lönd né strönd þá tekur það engan 10 mínútur að liðka til fyrir sjúkrabíl... Tala nú ekki um að fólk heyrir ekkert í sírenunum fyrir flautum vörubílstjóra... Mér finnst líklegra að það tæki hátt í klukkutíma ef ekki bara nokkra klukkutíma fyrir sjúkrabíl að komast í gegnum alla þvöguna. Það gæti bara verið of seint fyrir sjúklinginn. Hvað þá? Á að hafa þyrlurnar tilbúnar? Hver borgar fyrir það?
Mér finnst þetta alveg farið að verða gott... Ég studdi þá fyrst og mér finnst málstaðurinn góður en þetta fer að verða gott. Það eru flestir að verða komnir með leið á þessu. Komast ekki í vinnuna í einn eða tvo daga... ókey.... en hátt í heila viku... þá er þetta bara orðið leiðinlegt...
03. apríl 2008 klukkan 15:05
6
Sandra skrifar:
Já og eitt enn... Varðandi þetta með lögguna Þórður. Ég viðurkenni það að ég hef ekki hugmynd um það hvort vörubílstjórar láti lögguna vita eða ekki en ég held að það sé ekki hægt að dæma það á því hvort löggan sé til staðar á einhverju götuhorni þegar mótmælin byrja. Bílarnir fara hægt um og eins og ég sagði áðan þá heyrist ekkert lítið í flautunum.... Ég veit ekki betur en að hver einast lögga á höfuðborgarsvæðinu sé á vakt þessa dagana á háannartíma (jú þeir eru fámennir en samt) Auðvitað eru þeir úti um allt núna og búast við mótmælum... Þeir koma auðvitað med det samme og tveir vörubílar sjást saman.
Það mætti halda að maður hefði einhverjar skoðanir á hlutunum ;)
Það mætti halda að maður hefði einhverjar skoðanir á hlutunum ;)
03. apríl 2008 klukkan 15:23
7
Ţórđur Ingi Bjarnason skrifar:
Vörubílstjórar láta lögregluna ekki vita formlega. Það væri lang best ef þeir myndu vinna þetta í samvinnu við lögregluna. En þegar þrir til fjórir lögreglubílar eru til staðar þegar mótmæli hefjast þá hlítur lögreglan að hafa verið búnir að fá einhverjar vísbendingar hvert þeir ætla. Þeir safnast allir saman á einum stað og keyra í langri röð svö lögrelgan getru gert ráðstafanir miðað við hvert þeir sjást aka. Þessi bílar læðast ekkert um og eru mjög sýnilegir. En þessi mótmæli hafa staðið mun lengur en önnur mótmæli og vonandi fer eitthvað að skýrast í þessu því ekki getur þetta gengið svona mikið legnur því ef aðgerðir fara verða harðari þá má búast við að þetta fari út í vitleysu sem má alls ekki gerast.
04. apríl 2008 klukkan 09:00
8
Stjáni skrifar:
Mér finnst nú alveg magnað að þið umhverfisverndarsinnar (Sandra og Þórður) séuð samþykk þessum mótmælum. Þið vitið af hverju þessar álögur eru á bensín er það ekki? Það er til að jafna ytri áhrif mengunar af völdum bíla. Þannig að sá sem ekki á bíl sé ekki að búa við verri skilyrði fyrir tilstuðlan mengunar. Tollarnir eru til að draga úr bensínnotkun og þannig skaðleg áhrif á náttúruna. Annars er ég bara að vera ósammála öllu í dag. Getur spurt hvern sem er ;)
07. apríl 2008 klukkan 22:49

Kv. Sigrún