Hólar againSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er ég að verða búin að klifra frá mér allt vit. Ég dró Ödda með mér nauðugan/viljugan á þriðjudag, fimmtudag og svo aftur í dag. Fyrstu tvö skiptin fórum við í Klifurhúsið en í dag fórum við í Björk í Hafnarfirði. Ég er búin að læra nokkur orð og svona... í Klifurhúsinu er t.d. BOULDER en það er þegar maður er ekki með belti og línu og svoleiðis heldur bara vöðva og dýnu undir. Fyrst fannst mér allir vera að tala um Bulldog... en það er kannski ekki alveg það sama Glottandi En í Björku erum við að tala um 7m háan vegg og þá er nú kannski betra að vera í línu og öllum herlegheitunum.
Ég er nokkuð sátt... hendurnar eru t.d. enn fastar á líkamanum og virka nógu vel til að pikka inn þennan texta... held ég hafi ekkert verið arfaslæm... þó það sé ekkert að marka hvað Öddi segir... hann er bara Pollýana og finnst allt frábært Glottandi
Á morgun förum við aftur upp í Björk og þá koma Pálína og kannski Villý líka með. Pæjuklúbburinn er sum sé kominn með klifur á heilann... Eftir klifrið á morgun verður svo lagt í hann norður á land. Vettvangsferð á Akureyri. En þetta verður stutt stopp núna. Því ritgerðin á að fara að klárast. Fer aftur norður um næstu helgi og stoppa þá aðeins lengur því þá er árshátíðin Brosandi 

Ritgerðin gengur annars alveg ágætlega. Búin að taka fimm af sex viðtölum og nú verður bara að fara að vinna úr þeim. Sum sé það erfiðasta eftir.... eeennn það er bara gaman!

Gott í bili
Bless kex ekkert stress
Sandra

Athugasemdir

1
Sandra Björg StefánsdóttirMyndir af klifri komnar á myndasíðuna

Allir að kvitta Svalur
30. mars 2008 klukkan 22:17
2
Ég séð að þú ert kominn með klifurdelluna. En klifurveggurinn í Björk er góður og gaman að æfa sig í honum. Þar tók ég æfingu bæði í að klifra og síga þegar ég var í björgunarsveitinni í Hafnarfirði og var það mjög gaman. Sjáumst á morgun í vetvangsferðinni.
kv
Þórður Ingi
31. mars 2008 klukkan 20:44
3
Nancy skrifar:
Kvitt! Og kveðja.

PS: Hvers vegna svartur bakgrunnur...er ekki vorið að koma...s.s. sól og svoleiðis? :-)
01. apríl 2008 klukkan 15:25
4
Sandra Björg StefánsdóttirHvít síđa fyrir Nancy ;)
02. apríl 2008 klukkan 11:54

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur