PáskarnirSandra Björg Stefánsdóttir
Jæja þá eru páskarnir búnir og páskaeggið sömuleiðis.Ég hef nú ekki framkvæmt margt í þessu fríi mínu enda ákvað ég að nú væri mál að hvíla toppstykkið pínulítið fyrir komandi vikur. Þó afrekaði ég að taka viðtal fyrir BA ritgerðina mína þannig að tvo eru búin og fjögur eftir. Það er alveg ofsalega gaman að taka þessi viðtöl... og gaman að heyra skoðanir fólks og rökstuðninginn á bakvið þær en jiii minn eini hvað það takur langan tíma að skrifa upp viðtalið eftir á. Ég veit ekki hversu marga klukkutíma það tók mig að skrifa upp rúmlega klukkutíma viðtal. Kannski það sé bara nóg að taka tvö viðtöl? Neeee held nú ekki...!
Reyndar passaði ég tvo hunda í páskafríinu. Hún Perla litla (stóra) var hjá okkur í nokkra daga eins og ég sagði síðast en hún fór heim á páskadag. Ég var eiginlega miður mín þegar hún fór, þó svo að ég hafi verið að farasta í höndunum af harðsperrum eftir að halda í tauminn hennar í göngutúrum og með marbletti á fótleggjunum eftir kraftmikið skottið hennar þá samt!
En hann Nói litli var hjá mér í gær meðan Hornfirðingarnir fóru í fermingarveislu. Ég þakka nú fyrir að hann er öllu minni en Perla því ég hefði ekki boðið í að ganga með hann í taumi ef hann væri mikið sterkari. Þessi litli ormur er gjörsamlega þindarlaus og gat með engu móti skilið að ég nennti ekki að hlaupa dalinn þvers og kruss með honum
Ég heimsótti líka Hrefnu og litla guttann. Hann er kominn úr hitakassanum og öndunarvél og bara hinn frískasti. Drengurinn er alveg nákvæmlega eins og Aníta Ósk stóra systir hans. Mér eiginlega brá að sjá hversu lík þau eru. Aníta er samt orðin alger himnalengja og algjör skvísa. Ég segi það enn og aftur... tíminn líður allt of hratt... ég er að verða gömul en samt á ég eftir að gera eiginlega bara allt
Framundan er bara harkan, ég var að skipuleggja dagskrá næstu tveggja vikna og ég held bara svei mér þá að svefn sé ekki í boði fyrr en eftir árshátíð Hólanema 5. apríl. Þangað til verður bara unnið stanslaust til að klára BA i tíma...
En fyrst ætla ég að hitta Ödda í Klifurhúsinu og sjá hvort hann geti ekki kennt mér eitthvað smá
Bless í bili
Sandra
Athugasemdir
1
Stjáni skrifar:
Páskaeggið??? As in páskaeggið í eintölu?? Fékkstu bara eitt páskaegg? Og eitt enn. Af hverju er ég ekki í Vinirnir líka þó ég sé í Hólafólk? Þú ert hjá mér undir Vinir sem blogga. Er ég ekki vinur þinn?
28. mars 2008 klukkan 13:40
2
Sandra Björg Stefánsdóttir skrifar:
Elsku kallinn minn... ţú ert svo SANNARLEGA vinur minn... ég er hér međ búin ađ breyta nafninu í "Vinir á Hólum"..! Ég hafđi hreinlega ekki áttađ mig á ţessum mistökum mínum ;)og já ég fékk bara eitt páskaegg... sniff sniff... nema ţađ bíđi mín eitt á Hólum... jahh mađur spyr sig ;)
28. mars 2008 klukkan 13:56
3
Ţórđur Ingi Bjarnason skrifar:
Það komu svo mörg páskaegg hingað heim að við erum enn að borða egg.
Gangi þér vel í BA skrfum
kv
Þórður Ingi
Gangi þér vel í BA skrfum
kv
Þórður Ingi
29. mars 2008 klukkan 10:12
4
Stjáni skrifar:
Af hverju ætli Þórður sé enn að borða egg þegar hann er með fullt af páskaeggjum? Af hverju borðar hann ekki páskaeggin sín?
Kveðja Stjórnarandstaðan A.K.A ósammáladeildin
Kveðja Stjórnarandstaðan A.K.A ósammáladeildin
07. apríl 2008 klukkan 23:02
