Endilega kvittiđi nú... og látiđi ekki blekkja ykkur ţó teljarinn segi núll hann er enn einu sinni bilađur... híhí
Gleđilega PáskaSandra Björg Stefánsdóttir
Hrefna og Sæmi eru búin að eignast lítinn strák. Prinsinn kom mánuði fyrir tímann og þess vegna kúra þau mæðginin uppi á Landsspítala. Strákurinn þarf smá aðstoð við að anda en er allur að koma til. Hann var 50 cm og 13 merkur og því kannski ekki svo lítill en fyrirburi engu að síður.Til hamingju elsku krúttin mín
Nú er ég búin að vera í bænum í nokkra daga og hef afrekað það að taka mitt fyrsta BA viðtal. Þá er það fyrsta af sex búið. Það var bara gaman að ræða hlutina en þvílík vinna að skrásetja samtalið eftir á... úff meira en ég hélt. Næsta viðtal er svo á morgun en afgangurinn ekki fyrr en eftir páska. Þetta fjallafólk er alltaf eitthvað að vesenast um páskana
Hún Perla litla er í pössun hjá okkur yfir páskana, gaman að hafa hund í Álfatúninu aftur, ótrúlegar miningar sem rifjast upp fyrir manni. Fúsi og Sigrún eiga hana Perlu sem er svört labrador tík. Hún er nú óttarlegur kjáni enda rétt rúmlega hvolpur ennþá. Við Solla nenntum engan vegin að hanga inni í þessu frábæra veðri dagsins og því skelltum við okkur í göngutúr með Perlu niður í Nauthólsvík.
Hér eru nokkrar myndir frá deginum og eins síðustu dögunum á Hólum.





Gleðilega Páska
Sandra
Athugasemdir
1
Sandra Björg Stefánsdóttir skrifar:
Endilega kvittiđi nú... og látiđi ekki blekkja ykkur ţó teljarinn segi núll hann er enn einu sinni bilađur... híhí
21. mars 2008 klukkan 18:50
2
Pálína skrifar:
Greinilega æðislegt í borginni. Við söknum þín samt mikið á norðurlandi !!!!!
Kvitt kvitt,, ég les bloggið ofcourse alltaf :)
Hafðu það gott skvísa
knús knús
Kvitt kvitt,, ég les bloggið ofcourse alltaf :)
Hafðu það gott skvísa
knús knús
21. mars 2008 klukkan 23:03
4
Harpa og Gabríela Ósk skrifar:
Gleðilega páska sæta skvísa :-)
Páskaknús frá okkur
Harpa og Gabríela Ósk
Páskaknús frá okkur
Harpa og Gabríela Ósk
24. mars 2008 klukkan 10:31
