Allt ađ verđa búiđ...!!!Sandra Björg Stefánsdóttir

Þá er síðasta kennsludeginum á Hólum lokið. Trúið þið því? Ekki ég!!!
Ég fer líklega suður á Sunnudaginn, ætla að reyna að læra í kvöld og á morgun, svo pakka niður og þrífa smá áður en ég legg í hann. Þetta er ótrúlegt, nú fer að koma að síðasta göngutúrnum í skóginum, síðustu dagdraums-stundin við gluggan þar sem fjöllin mín eru sögusviðið, síðasta blótið útaf lyktinni af heita vatninu.... síðasta bara allt....
Mig svimar nú bara að hugsa um þetta...!

Nýi bær


Ekki að það sé eitthvað lítið á dagskránni framundan... nei oh nei... það bíður nefnilega eitt stk BA ritgerð eftir að vera skrifuð. Þó mér finnist ritgerðin ótrúlega spennandi þá væri ég svo sem alveg til í að skjótast á "Aldrei fór ég suður" en í staðinn ætla ég að taka viðtöl og þykjast vera gáfuð... og jafnvel klifra svolítið með Erni í Klifurhúsinu Svalur

ble ble í bili
Sandra

Athugasemdir

1
solla skrifar:
Jáh ég verð eiginlega að taka undir þetta.
Finnst svo stutt síðan þú hafnaðir klæðskeranum í iðnsk. í rvk og ákv. að fara norður....er nú líka hálf fegin núna hehehe.
En já tíminn líður ótrúlega hratt!!!
Njóttu síðasta tímans....jih bara eins og eh hafi dáið skoh.

Sjaumst á morgun.
Sollz
15. mars 2008 klukkan 13:00
2
Harpa Hrönn skrifar:
Hæ hæ músin okkar,

Þá er komið a leiðarlokum hjá þér.....vá vá hvað tíminn líður hratt. Gangi þér rosalega vel og við hlökkum
til að sjá þig.
Knús og kossar frá okkur til þín og við hugsum til þín á hverjum degi :-)
Kv,
Harpa og Gabríela Ósk
15. mars 2008 klukkan 20:14
3
Sandra skrifar:
Hehe kannski hefðir þú Solla farið beint í hönnunina ef ég væri í klæðskeranum... þú hannar og ég sauma ;) Hugsa nú samt að þetta sé betra svona eins og það er núna... :)

Ég skal lofa að vera duglegri að heimsækja ykkur mæðgur Harpa mín þegar ég kem í bæinn... eða amk þegar ég hef skilað af mér BA ritgerðinni :)

Sandra
15. mars 2008 klukkan 20:24
4
Nancy skrifar:
Ég fæ smá gæsahúð við að lesa pistilinn...Hólar án þín Sandra mín,
já mér finnst þetta líka frekar óhugsanlegt!
Væri til í að fara með í skógagöngutúr :-)
Gangi þér vel í BA-verkefninu.
Kæra kveðjur frá Greifswald á Hóla til þín :-)
Nancy
15. mars 2008 klukkan 21:54

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur