Reykjavík og HöfnSandra Björg Stefánsdóttir

Komiði sæl öll sömul,
þá er ég komin heim á Hóla eftir 2 vikna fjarveru. Fyrst fórum við á IFEA ráðstefnu í bænum en það stendur fyrir International Event and Festival Association. Það var ofsalega gaman að taka þátt í henni og við lærðum margt af þeim bestu í bransanum. Þá tók við nokkra daga "frí" þar sem ég sat límd við tölvuna og reyndi að klára eina að þrem ritgerðum sem skila á í þessari viku. Ég gaf mér nú samt tíma til að kíkja á nýju íbúðina hennar Örnu og Arnars Brosandi

Nú svo lá leið á Höfn í Hornafirði. Ferðin tók litla ÁTTA klst því Pálína var með í för og það var stoppað á 5 metra fresti til að taka myndir... Svalur en það var ofsalega gaman á Höfn og ég gisti að sjálfsögðu í Fákaleirunni. Ég ætlaði nú varla að þekkja "litlu" frænkurnar mínar því þær eru bara alls ekkert litlar lengur. Við Hólafólk brölluðum margt skemmtilegt, fórum inn að Hoffelsjökli með Ingibjörgu og Dúdda, var boðið í risa matarboð í Hoffelli, út að borða á Humarhöfnina og ég veit ekki hvað og hvað. Helst hefði ég viljað vera miklu lengur á Höfn því þar er best að vera. Heimleiðin var ekki alveg eins frábær þar sem hún tók ELLEFU OG HÁLFAN TÍMA. Ég er ekki viss um að ég fái mig til aðsetjast inn í bíl í bráð... ég labba frekar út á Krók!!!!

Ég tók fullt af myndum sem eru inni á myndasíðunni minni en hér koma örfá sýnishorn.

jökulsárlón


Hoffelsjökull


Jöklasýningin


Kennsla í humaráti




Sandra

Athugasemdir

1
Pálína skrifar:
Frábær ferð í alla staði

Staðan í dag

Engin einbeiting
Er samt að reyna
Ánægð að lokinni ferð


Kveð að sinni

takk fyrir alles
10. mars 2008 klukkan 14:49
2
Pabbi skrifar:
Þú verðr ara að fá þér þyrlu... eins og hinar prinsessurnar. Anna segir fullum hálsi að þið stelpurnar mínar séuð prinsessur... pabba prinsessur.
10. mars 2008 klukkan 15:28
3
Sandra skrifar:
Staðan er eitthvað svipuð hjá mér í dag Pálína :)

Svei mér þá ef prinsessan og pabbsen hafa ekki bara rétt fyrir sér.  Prinsessur eiga að ferðast í þyrlum... þær geta nú ekki kostað svo mikið ;)
10. mars 2008 klukkan 15:52
4
Þetta var frábær ferð. Hvernig heldur þú að ferðinn hafi verið í gær ef veðrið hafi verið eins gott og í dag og Myndavélinn hennar Pálínu í lagi. Þá hefur þetta tekið 15 tíma. En þetta var gaman . Það er ekki mikil einbeiting í dag.
10. mars 2008 klukkan 20:58
5
solla skrifar:
haha prinsessurnar við :) það er ekki leiðinlegt :)
11. mars 2008 klukkan 13:58
6
hulda h skrifar:
heheh, sunnudagurinn hjá mér var frábær, svaf út, flaug svo til rvk, fór út að vorða um kvöldið og í bíó, hefði ekki getað verið betra;)
11. mars 2008 klukkan 21:39
7
Sigrún Inga skrifar:
Hæ hæ! Enn gaman að finna síðuna þína af algjörri tilviljun! Hafðu það rosa gott og sjáumst örugglega á Höfn einn góðan veðurdag:)
12. mars 2008 klukkan 21:10

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur