Það er stutt efitr hjá okkur hér á Hólum. Vetvangaferðinn á Höfn verður örugglega æðisleg og hlakka ég mikið til.
kv
Þórður Ingi
EurovisionSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er orðið ljóst hvaða lag fer í Eurovision keppnina fyrir Íslands hönd.Fyrst um sinn elskaði ég Hey Hey Hey Ho Ho Ho... en eftir því sem ég heyrði lagið oftar þá eiginlega bara dalaði það. Annað lag sem var hins vegar alltaf MIKLU betra og betra var lagið hans dr.Gunna með dr.Spock. Hvar ertu Nú? Mikið ótrúlega hefði verið flott ef það hefði farið út til Serbíu, þá hefði verið eitthvað fútt í þessu! Ekki það, Eurobandið var alveg ágætt... þau lögðu greinilega allt í þetta og stóðu sig ágætlega. Mér fannst reyndar lagið vera svolítið innantómt núna. Vantaði eihverja fyllingu í það, maður heyrði eiginlega bara raddirnar þeirra og svo trommuslátt. Það var amk mitt mat. Ég verð nú samt að viðurkenna að þetta var gífurlega flott atriði, Sigrún og stöllur voru geðveikislegar í dansinum.
Hér á Hólum vorum við með smá partý, það var nú ekki skipulegt fyrr en eftir hádegi í gær og eiginlega settum við Benna í að sjá um að bjóða fólki. Benni býr nota bene ekki hér
Við kíktum svo á Mælifell á eftir. Einar Águst var mættur í sveitina með kassagítarinn og ég get svo svarið það að þegar hann tók nokkur vel valin Skítamóralslög fékk Sandran fiðring í tærnar....
Nú ætla ég að fara að pakka niður því á þriðjudaginn er það bara Reykjavík city. Við tökum þátt í ráðstefnu þa vikuna og höldum svo til Hafnar í Hornafirði dömur mínar og herrar. Ég hlakka svo til að ég get ekki beðið.
Hugsiði ykkur, tvær vikur í vettvangsferð, svo ein vika á Hólum og svo er ég farin héðan!!!
Ég trúi því ekki... Heil ÞRJÚ ár eru liðin!
Það kemur nú smá fyrir hjartað þegar ég leiði hugann að því að hugsanlega var gærkvöldið mitt síðasta Króksara-djamm.... nei ég vil ekki hugsa um það....
bless í bili
Sandra
Athugasemdir
3
Sandra Björg Stefánsdóttir skrifar:
Hehe já Pálína, Skap/ftarnir verđa flottir á Mćlifelli eftir 65 ár međ hrukkur og björgunarhringi hhahahaha24. febrúar 2008 klukkan 14:00
4
Harpa Hrönn skrifar:
Hæ hæ sæta skvís :-)
Mátti til með að kvitta.....
Verð nú bara að taka undir þetta með framlag okkar til Eurovison.....þetta er ekta svona "júró"popp....hefði líka viljað sjá Dr Spock þarna og hafa svolítið fútt í þessu. Mikið hefði ég viljað sjá gamla sjarminn hann Einar Ágúst þar taka nokkur velvalinn Skímólög ;-) maður hálf saknar þeirra. Hafðu það gott og vertu dugleg að læra :-)
Knús og kossar frá okkur
Harpa og Gabríela Ósk
Mátti til með að kvitta.....
Verð nú bara að taka undir þetta með framlag okkar til Eurovison.....þetta er ekta svona "júró"popp....hefði líka viljað sjá Dr Spock þarna og hafa svolítið fútt í þessu. Mikið hefði ég viljað sjá gamla sjarminn hann Einar Ágúst þar taka nokkur velvalinn Skímólög ;-) maður hálf saknar þeirra. Hafðu það gott og vertu dugleg að læra :-)
Knús og kossar frá okkur
Harpa og Gabríela Ósk
24. febrúar 2008 klukkan 21:10

Þannig við verðum 70 ára þegar síðasta tjúttið verður tekið
Jæja nú styttist í suður ferð
Mikið svakalega er ég spennt
Knús knús