KlifurSandra Björg Stefánsdóttir
Í kvöld var aftur farið og klifrað í Björgunarsveitarhúsinu á Króknum. Í þetta skiptið vorum við bara þrjú, Pálína, Öddi og ég. Við stúlkurnar fengum kennslustund í að tryggja og tryggðum svo hvor aðra.... ég segi það ekki... hjartslátturinn var ansi hraður á köflum en engin stórslys urðu á fólki.
En svo kom að því að Öddi vildi upp..... það var nú ekki alveg eins einfalt. Það féll í min hlut að tryggja pésann..... Þetta fór nú bara vel af stað, þangað til gaurinn missti takið og datt... þá tókst Sandra á loft! Pallan hljóp þá til og í sameiningu tókst okkur að koma drengnum heilum niður. Aftur á móti var ástandið verra þegar Pallan var farin... Þá varð ég að gjöra svo vel og redda þessu! Reyndar hálf drap ég greyið Ödda... ég náði að bjarga því fyrir horn þannig að hann bakbrotnaði ekki en hnéð á honum laskaðist verulega... FYRIRGEFÐU ÖRN!!!!

Nú er stefnan tekin á Klifurhúsið í Reykjavík þar sem bæði fyrsta og annað árið eru í vettvangsferðum þar í næstu viku. Ég hlakka svo til.
Annars er Pálína búin að skipuleggja gönguskíðaferð um næstu helgi og það er ekkert annað að gera en að krossleggja fingur og vona að veðurguðirnir verði samvinnuþýðir.
Bless í bili
Sandra
Athugasemdir
2
prontpernar skrifar:
Ancora nessuna visita di qualche italianski? Lascio giù un commento io per primo. Complimenti per lo sport che hai scelto di praticare. Greatings from South-Tyrol.
21. febrúar 2008 klukkan 10:30
3
Sandra Björg Stefánsdóttir skrifar:
hehe já Pálína þetta var rosalegt og ég skil ekkert í Ödda að hafa þorað upp aftur En ég hef ekki hugmynd um hvaða grínisti þetta er sem var að kvitta hér hjá mér en þetta er það sem hann sagði:
"Still no visit of some italianski? I for first down leave a comment. He compliments for the sport that you have chosen to practice."
Þýðing í boði www.altavista.com
21. febrúar 2008 klukkan 11:46

KLIFURHÚSIÐ er svoooo að bíða eftir okkur, við verðum flottar þar hrynjandi í dínurnar hægri vinstri.
Veðurguðirnir hljóta að lesa blogg og vinna því með okkur að þessarri ferð. Það er ekki nema hann Gvendur sé að hringja í þá og bjóða þeim háar fjárhæðir fyrir stormasamt veður þennan frábæra dag.
See ya í skúlen á morgun