Klifur og HáskóladagurinnSandra Björg Stefánsdóttir

Þá er ég komin með nýtt áhugamál, við Pálína, Örn og Hulda fórum í síðustu viku niður í Björgunarsveitarhús á Króknum og eyddum þar kvöldstund. Nei ég ætla mér ekki að ganga í björgunarsveitina, hins vegar er í því húsi klifurveggur sem við fáum að nota nánast hvenær sem er. Þetta var algjört æði, Örn hefur stundar klifur í nokkur ár og tók okkur stelpurnar í kennslustund. Við erum strax komin með áætlanir, förum á Krókinn nokkrum sinnum í vikur og þegar við förum í vettvangsferðir á Akureyri eða Reykjavík verður klifrað eins og við mögulega getum. Í vor verðum við orðnar svo asskoti góðar að við förum svo eitthvað út að klifra. Endum svo að sjálfsögðu á Grænlandi uppi á Gunnbjornsfjeld hjá henni Pálínu Svalur


Klifur vs. göngumaður Ég að klifra
 
Pallan við vegginn Öddi og Hulda

Það eru svo fleiri myndir á myndasíðunni minni.

Annars er ég í Reykjavíkinni núna. Stutt stopp engu að síður, kom á föstudagskvöldið og fer aftur núna bráðlega (hádegisbil sunnudags). Tilgangur ferðarinnar er Háskóladagurinn sem að þessu sinni var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur en hann er einmitt viðburðurinn minn í áfanganum Hátíðir og Viðburðir. Ég er ánægð með hversu mikið hann hefur breyst á þessum 3 árum mínum í Háskólanum á Hólum. Fólk hefur áttað sig á mikilvægi hans og sífellt er lögð meiri áhersla á hanns. Ferðamáladeildin hafði upphaflega ætlað að hafa tjald í básnum okkar og þaðan áttu að heyrast hrotur en það kom svo á daginn að tjaldið sem við fengum lánað var allt of stórt. Auðvitað var reynt að hringja út um allt til að redda nýju minna tjaldi á síðustu stundu en því miður tókst það ekki. Þetta verður þá bara að bíða til næsta árs.
Það er alltaf jafn skemmtilegt að taka þátt í þessu og verður eiginlega skemmtilegra með hverju árinu sem líður og maður verður öruggari og veit meira. Núna í ár finnst mér fólk vera mun meðvitaðra um Hóla og sérstaklega ferðaþjónustu, maður var ekki að þröngva bæklingum inn á fólk, amk ekki að öllum.

Jæja þá er það orðið gott í bili.
Sandra

Athugasemdir

1
Pálína skrifar:
Þú ert svo dugleg að kynna námið, stolt að þér skvísa að standa þarna fyrir okkar hönd.

Í sambandi við klifrið, er ekki stefnan tekin á morgundaginn svo við verðum öll fær í Gunnbjornsfjeld í Júlí ????

Hlakka mega til að hitta þig, eiginlega of margar dagar síðan síðast. Don't let it happen again ;O)

Knús knús
17. febrúar 2008 klukkan 23:41
2
Sandra Björg StefánsdóttirJúbbs klifur í kvld og kannski bara á miđvikudaginn líka... ţađ er ekki eins og ţađ sé eitthvađ ađ gera í skólanum ;)

Sí jú túnćt :)
18. febrúar 2008 klukkan 10:40

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur