Ţorrablótiđ miklaSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er Þorrablótinu mikla lokið.Veðurguðirnir voru nú ekkert sérstaklega samvinnuþýðir og hleyptu öllu upp í storm og læti svo það fór heldur lítið fyrir grillpartýinu. Engu að síður vorum við svo forsjálar að fjárfesta í kjúklingi sem eldaður var á nó tæm. Þá tók við Móhító blöndun með hökkuðum klökum og alles, blandarinn var sérstaklega sóttur út á Krók til ömmu og afa
Eftir ýmsar útfærslur á veggjaklifri og hömpdansi var brunað út á Hofsós á ball. Það var alveg prýðileg mæting þrátt fyrir áðurnefnt ósætti við veðurguðina. Reyndar var á sama tíma risastórt þorrablót úti á Krók þannig að maður var ekkert að kafna úr mannþröng en Hólafólk skemmti sér engu að síður eins og þeim einum er lagið.
Ég tók nokkrar myndir og er búin að skella þeim inn á myndasíðuna.
Eitt óveðurskvöldið hér í vikunni var internetið tekið af húsinu okkar. Þetta hefur eitthvað með það að gera að sendirinn getur brunnið yfir þegar veðrið er vont. Ekki spyrja... ég veit ekki svarið...!!! Þetta gerist bara hjá okkur vegna þess að við erum eina húsið með þráðlaust net.... Því fylgja sum sé bæði kostir og gallar. Nema hvað, hann Stjáni Ben var friðlaus þetta kvöld og vissi ekkert hvað hann átti af sér að gera. Hann tók því upp á því að bjóða hingað í kofann nokkrum vel völdum einstaklingum og við fórum að spila Laumu. Þetta er eitt það auðveldasta spil sem fundið hefur verið upp og flest allir læra það áður en þeir byrja í grunnskóla. Engu að síður sátum við heilt kvöld, 9 manns, öll yfir tvítugt (og sumir vel það) og æstum okkur upp úr öllu valdi yfir spilinu. Fólk þurfti bókstaflega að taka sér pásu við og við til að kæla sig niður, spennan var þvílík
En jæja látum þetta duga í bili,
Endilega kvittiði nú öll sömul
Sandy Dandy
Athugasemdir
1
solla skrifar:
hæhæ skvís...já lauma það var sko skemmtilegt spil :)
10. febrúar 2008 klukkan 23:40
2
Pálína skrifar:
ég er eiginlega meira að spá í að leggja mig fram við svona laumu kvöld en drykkju á þorrablóti haha.
11. febrúar 2008 klukkan 13:28
3
Sandra skrifar:
Viktor beibí klikkar ekki á smáatriðunum 
http://mbl.is/mm/sport/fotbolti/2008/02/11/viktor_skoradi_fyrir_lillestrom/
http://mbl.is/mm/sport/fotbolti/2008/02/11/viktor_skoradi_fyrir_lillestrom/
11. febrúar 2008 klukkan 22:14
4
Stjáni skrifar:
Hversu gaman var þetta? eeeeeee leimmér að hugsa... GEÐVEIKT tíhí ;) Þurfum að gera meira af þessu!! Spilakvöld næstu helgi???
12. febrúar 2008 klukkan 12:51
5
Sandra skrifar:
já eða kannski bara fyrr... Reyndar verð ég á háskóladeginum í borg óttans um næstu helgi og ætla að reyna að draga smk Mörtu með mér þangað...
Því fyrr þvi betra ;)
Því fyrr þvi betra ;)
12. febrúar 2008 klukkan 15:57
