Brjálađ veđurSandra Björg Stefánsdóttir
Úfff þetta er nú meira óveðrið á Klakanum.Anna Banana er hér á landi með stóru systur sinni. Hún vildi endilega fara austur á Höfn og sýna systur sinni allt það sem ég sýndin henni á Rauða kagganum mínum hér fyrir tveim árum. Nema hvað... í dag er búið að vera brjálað veður. Skvísurnar enduðu útaf við Hveragerði og var bjargað af Björgunarsveitargæjum... Úfff þetta hefur verið þvílíkt ævintýri fyrir þær.
En þetta er einmitt málið, ég var búin að reyna að vara þær við veðrinu en hefði vafalaust mátt gera miklu betur. Þær fengu hvergi upplýsingar um veðurspánna... þær vissu ekkert hvernig þetta er hér á Klakanum. Afhverju sagði bílaleigan ekki eitthvað eða gistihúsaeigandinn? Greyin... þær voru auðvitað skíthræddar....
Engu að síður hafa þær auðvitað GEGGJAÐA ferðasögu til að deila með vinum sínum
Annars er búið að vera heilmikið húllum hæ hér á Hólum. Fullt út úr dyrum í bolludagskaffi (eða svona nánast) og svo grímuball í gær. Snillingarnir á fyrsta ári klæddu sig upp í tilefni dagsins eins og litlu börnin. Ég tók nokkrar myndir af þeim sem þið getið skoðað á myndasíðunni minni
Afi greyið er aftur orðinn veikur og var fluttur suður í gær, eiginlega sem betur fer að hann fór þá því það lítur allt fyrir að það verði ekki flogið fyrr en á sunnudag... ef eitthvað er að marka veðurspánna.
Pabbi er svo búinn að sækja um sem Leikhússtjóri á Akureyri og ég vona svo sannarlega að hann fái stöðuna, það væri æðislegt að fá þau öll heim aftur
Svo er það bara þorrablót á laugardaginn.... grillpartý á Hólum fyrst og svo brunað á ball....
óver and át
Sandra
Athugasemdir
1
Stjáni skrifar:
Hey hey hey... Hvað þarf maður að gera til að vera boðið í grillpartý á Hólum??
07. febrúar 2008 klukkan 19:58
2
Sandra skrifar:
Hahahahha maður þarf að bjóðast til að grilla fyrir pæjurnar sem nenna ekki að hanga úti í vondu veðri ;)
07. febrúar 2008 klukkan 20:01
3
Nancy skrifar:
Grillpartý í snjónum- þetta hljóma vel ;-)
Skemmtið ykkur vel skvísur!
Skemmtið ykkur vel skvísur!
08. febrúar 2008 klukkan 16:55
