Það finnst ekki svona bolludagur hérna :-(
Pannig að ég vona að einn svona var borðaður fyrir mér ;-)
Kv.
Nancy
Djamm helgin ógurlegaSandra Björg Stefánsdóttir
Þá er dagur að kveldi kominn og djammi þessarar helgar lokið.Þvílíkt og annað eins stuð hef ég varla upplifað, veeeeel tekið á því eins og sönnum Hólamönnum sæmir.
Í gær var Skagafjörður í Útsvari og í tilefni þess var haldið pizza-singastar-bjórkvöld uppi í skóla. Lið Skagafjarðar var samsett úr hvorki meira né minna en tveim Hólakennurum og einni stjörnu=Ásdís+Óli+Óskar Álftagerðisbróðir. Ásdís kennarinn minn í Vöruþróun og Nýsköpun er svo mikill snillingur að hún kynnti skólann í gríð og erg og veifaði svo til okkar nemenda sinna... Þá ætlaði allt gjörsamlega um koll að keyra. Óli fiskakennari fór svo á kostum þegar hann lýsti starfi sínu sem "fiskasálfræðingur" Það er engum hnöppum um það að hneppa að lið Skagafjarðar var það allra skemmtilegasta í þættinum frá byrjun og tek ég þar orð Sigmars í munn. Því miður unnum við ekki en það var allt í lagi því þau voru svo skemmtileg.
Nú á eftir var farið í Singstar og tókum við Hulda þar eitt lag saman... ég náði nú einum 5000 stigum eða svo og var nokkuð sátt en Hulda söngfugl vann með glæsibrag engu að síður. Engin skömm að tapa fyrir þeirri skvísu enda lenti hún í öðru sæti í allri keppninni. Við Pálína máttum samt eiginlega ekki vera að því að gaula þetta því við vorum í fullri vinnu við að afgreiða á barnum... sjálfboðavinna að sjálfsögðu. Það var svo mikið stuð hjá okkur að fólkið sóttist hreinlega í okkur og röðin á barinn var þvílík! Annað hefur ekki sést á Hólum.
Í dag var ástandið og ferskleikinn mismunandi í liðinu... þetta var þó langt frá því að vera það versta sem sést hefur. Enda sannaðist það þegar leið á kvöldið að skvísurnar á ferðamálabraut kalla ekki allt ömmu sína og skelltu sér aftur á djammið. Í þetta sinn á Sheep-river-hook. Það var Club Night á Mælifelli. Ég fékk nú samt eiginlega áfall þegar ég gekk inn á staðinn því þessir MEGA DJar voru hvorki meira né minna en pelabörn úr snæló!!!!! Einn þeirra var Stjáni kjáni nágranni sem ég "passaði" hér í denn. Að vísu eru þeir um eða yfir tvítugt en þar sem að ég er enn 18 ára í anda þá eru þetta pelabörn í mínum augum! Þeir stóðu sig samt vel greyin og þó ég sé ekki á leiðinni út í búð og kaupa tónlistina þá var þetta ágætis breyting frá sveitaballa-fílingnum. Fyrst var allt voða þvingað og sérstakt en svo fóru fleiri Hólamenn sem og kunnuglegir Sauðkrækingar (tala nú ekki um Hofsósbúann ógurlega) að reka inn nefið þannig að í enda kvöldsins gekk Sandy út með sólskinsbros á vör
Heimferðin gekk líka eins og í sögu.... þangað til að komið var að bílastæðinu. Pollinn er algjört tryllitæki en þegar snjólagið er komið yfir 25 cmá veginum (hátt í metrann annarstaðar) þá dugar ekki að vera torfærutæki í anda...það þarf virkilega að vera á stórum dekkjum og háum bíl... Sú lýsing á ekki við aðal pæjubílinn sem er lár og á litlum dekkjum. Þess vegna var ákveðið (eftir 2 tilraunir í að komast að bílastæðinu) að leggja bara úti í kanti í brekkunni við húsið og krossleggja svo fingur að fólk hafi augun opin meðan það keyrir og endi ekki aftan á Pollanum.
Það hefur sum sé snjóða stanslaust í 3 daga og við erum að tala um púðursnjó. Að sjálfsögðu er alveg ótrúlega fallegt að ganga í skóginum en þegar komast á leiðar sinnar fæ ég pínu hausverk.
Í kvöld var frumsýning hjá pabba á Ofviðrinu og ég efa ekki að það hafi gengið frábærlega, hlakka til að heyra fréttir, sjá myndir og lesa gagnrýni
Mér til mikillar skelfingar áttaði ég mig á því í gær að Bolludagurinn er á morgun. Í fyrsta sinn á ævinni mun ég ekki bragða á mömmu-bollum þann daginn. Mér finnst þetta eiginlega alveg ómögulegt en í stað þess að gráta hef ég ákveðið að baka sjálf nokkrar bollur að hætti mömmu og bjóða öllum sem vilja í kaffi og bollur (eða kannski bara bollur) í Brúsabyggð 6 eftir BA-málstofuna á morgun. Óheppin þið sem komist ekki.....
Bless bless í bili
Sandra
Athugasemdir
2
Nancy skrifar:
04. febrúar 2008 klukkan 22:53
3
solla skrifar:
bíddu var þetta stjáni bekkjarbróðir minn??....þá spyr ég nú bara "PELABÖRN"!!!!
06. febrúar 2008 klukkan 12:47
4
Sandra skrifar:
Hahahahah Solla mín,
ég hef náttúrulega varla séð Stjána síðan hann var að teikna eithverjar skrímslamyndir heima hjá sér ;)
Fyrir utan að hann er ekki sá hæsti í loftinu :p
ég hef náttúrulega varla séð Stjána síðan hann var að teikna eithverjar skrímslamyndir heima hjá sér ;)
Fyrir utan að hann er ekki sá hæsti í loftinu :p
06. febrúar 2008 klukkan 13:26

Takk fyrir bollukaffið í dag, mega nice :)