hć hóSandra Björg Stefánsdóttir

Er þá ekki kominn tími til að skrifa aðeins um það sem á daga mína hefur drifið undanfarið. Ég er sum sé búin að vera á Hólum í rúma viku. Í millitíðinni hefur borgarstjórnin sprungið, Fisher og Heath Ledger fallið frá, Kaffi Krókur brunnið og 5 leikir íslenska landsliðsins í handbolta klárast. Um tvennt af þessu hef ég þegar tjáð mig, vissulega eru dauðsföllin sorgleg og þá sérstaklega hið síðara en mér finnst laaaang skemmtilegast að horfa á handboltann. Það hefði ekki verið verra ef fleiri leikir hefðu unnist en sætir strákar á stuttbuxum gera mig alltaf ánægða Svalur Stúdentafélagið er búið að fjárfesta í flatskjá uppi í nemendaaðstöðu og þar hópast mannskapurinn saman fyrir leiki og svo er gólað og klappað eins og fólk eigi lífið að leysa. Það veltur svo á því hvort leikurinn vannst eða tapaðist hvort farið er beint heim eða setið og spjallað eða jafnvel tekinn leikur inni í íþróttasal.
Pæjuklúbburinn hittist svo í svakalegu sukkpartýi í Jöklatúninu fyrr í vikunni. Þar var það aðal pæjan sem hélt um stjórnartaumana, engin önnur er Snúbban Íris Antonía. Við hámuðum í okkur ruslfæði og nammi, horfðum á sjónvarpið og slúðruðum eins og okkur einum er lagið. Frábært pæjukvöld og takk fyrir að taka á móti okkur Pálína Brosandi

Annars er alveg stíf dagskrá framundan. Náttúrulega nóg að gera í skólanum en líka utan hans.
Fyrstu helgina í febrúar eru Sóley og nokkrar skinkur að spá í að kíkja í sveitina til mín. Það verður vonandi ótrúlega gaman og þeim sýnt hvernig hlutirnir eru á Hólum. Lítill fugl hvíslaði því að það ætti meira að segja að halda bjókvöld í tilefni af því að 2 Hólakennarar verða í Útsvari á föstudagskvöldið og ekki verra að stelpurnar fái að njóta þess.
Þessa sömu helgi er frumsýning hjá pabba úti í Finnlandi á Ofveðrinu. Það er auðvitað alveg ömurlegt að komast ekki út að sjá verkið en það er því miður þannig þegar maður er nemi, hvorki verkefni né fjárhagur leyfa slíkar ferðir. En ég sendi pabba fullt af góðum straumum sem ég vona að hann geti nýtt Brosandi
Anna Banana kemur svo til landsins í byrjun febrúar og að sjálfsögðu reyni ég að hitta hana, hvort sem það veðrur í Reykjavík eða á Akureyri.
Það má svo ekki gleyma ÞORRABLÓTINU sem haldið verður 9. febrúar úti á Hofsósi. Þá verður tekið á því og rúmlega það, pæjuklúbburinn ætlar að elda/grilla saman og taka nokkra snúninga með Palla sínum áður en haldið verður á dansleikinn með Úlrik.
Laugardaginn 23. febrúar er Pallan svo búin að skipuleggja heljarins gönguskíðaferð fyrir mannskapinn. Núverandi og fyrrverandi Hólamenn eru hjartanlega velkomnir. Ég fæ nú bara verk í lærin af því að hugsa um þetta en það verður bara gaman... það er nú ekki eins og maður hafi aldrei orðið sér til skammar áður Glottandi Hugmyndir eru uppi um að Jane Fonda verði þema ferðarinnar og spennandi að sjá hvernig mannskapurinn leysir það...
Pallan er líka búin að skipuleggja ferð fyrir pæjuklúbbinn og Örn í Klifurvegg Björgunarsveitarinnar... Það verður eitthvað sögulegt og ef ég kemst lifandi frá því, fáiði vafalaust að heyra sögur og sjá myndir.
Í mars verður svo farið til Hafnar í Hornafirði og ég hlakka alveg ótrúlega til. Mér finnst eiginlega eins og ég sé að bjóða bekknum heim til mín... Þau skulu sko fá að sjá að sum sveitafélög standa sig betur í ferðaþjónustu en önnur Svalur
Pallan er að verða óð því í maí er hún svo að plana fimm daga hjólaferð um suðurlandið þar sem m.a. verður stoppað og farið í ísklifur á Sólheimajökli. Ég ætlaði að sjálfsögðu með í þá ferð (annar verkur í lærin) en nú eru aðstæður hjá mér kannski að breytast svolítið þannig að það er ekki víst að ég komist. En meira um það síðar.

Bless kex ekkert stess
Sandy

Athugasemdir

1
Nancy skrifar:
Vei, sætir strákar/karlmenn í stuttbuxum... það er æfing hja okkur í kvöld :þ
En já, hvað um hjólaferðina...var ekki planið að pæjuklubburinn fari saman?!
Kveðja,
Nancy
24. janúar 2008 klukkan 16:47
2
Pabbsinn skrifar:
Takk fyrir straumana. Nýti þá vel. Nóg að gera hjá þér. Njóttu síðustu daganna á Hólum... bara allt að verð a búið .
Kveðja
Pabbi
25. janúar 2008 klukkan 07:10
3
Sandra skrifar:
Já það er allt að verða búið... hugsa sér. Mér finnst ég nýkomin..

En Nancy, jú planið var að Pæjuklúbburinn, Snúbban, Sakkinn, Þóroddurinn og einhverjir útlenskir vinir hans og NANCY kæmu með í hjólaferð :)
25. janúar 2008 klukkan 12:39
4
Pálína skrifar:
GUÐ ÉG KEMST Í STEMMINGU AÐ LESA ÞETTA

hahahha við eigum eftir að hafa svooooooo gaman. Eg er eiginlega svekktust að hafa orðið
veðurteppt á flugvelinum og ekki komist til köben, því þar biðu mín fögru klifurskórnir. En ekkert sem íslenskt
Útilífsverslun getur ekki leyst ;););)

Jæja ætla fara sofa því á morgun ætla ég að bruna norður til þin.

Danmörk hvað elskan? Ísland er alveg best, marr er SANNUR Íslands vinur og tekur ekki þátt
í ssvona bulli hehehhehehehe. TÓOOPPPPASSSSSSSSS BABY, mannstu??? hahah

Jæja góða nótt Skapti minn

Knús knús þangað til á morgun,,,
26. janúar 2008 klukkan 01:55
5
Sandra skrifar:
Mwahahahhaha TÓPASINN á Krít marr... þú hefðir átt að fá laun frá ríkinu fyrir landkynningu hahaha

Hlakka til að sjá þig :)
26. janúar 2008 klukkan 12:49

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur