Síđasta helgiSandra Björg Stefánsdóttir

Jæja þá er helgin búin og var henni eytt mestmegnis fyrir framan sjónvarpið. Nei reyndar er það ekki alveg satt, því ég lærði alveg heil lifandis ósköp. Kláraði tvær ritgerðir, setti 5 ára áætlun nemendafélgsins í formlegt form... (hehe skemmtilega orðað, finnst ykkur ekki) Svo fluttum við Stjáni og Heiðrún nemenda aðstöðuna á sinn stað einu sinni enn.... vona að fólk fari ekki að fá ógeð af þessum fluttningum okkar endalaust. Fyrir utan þetta ofantalda þá lá ég í sófanum og horfði á imbann, enda var snarvitlaust veður í gær. Ekta inni veður. Um klukkan 18 fannst mér nú nóg komið af inniveru og ákvað að fá mér göngutúr! Þetta var mögulega versta hugmynd sem ég hef fengið, það munaði minnstu að ég yrði úti! Samt komst ég ekki einu sinni upp í skóla! Halla Malla myndi einnhver segja Glottandi

Viljiði athuga það að nú er æskuástin mín formelga orðinn íþróttamaður Landsbankadeildarinnar!!!! Konan kann að velja sér draumaprinsa Svalur ATH

Í fyrrakvöld horfðum við Lina á Artúr Konung eða King Arthur og hún er nú alltaf jafn ágæt, sætir flottir breskir strákar (allavega töluðu flestir með breskum hreim) og svo auðvitað Keira fyrirmyndin mín! Nema hvað þegar myndinni lauk hófst mynd á RUV sem heitir the Fyrsti Riddarinn (First Knight) eða eitthvað svoleiðis (með Sean Connery og Richard Gere). Það vill svo skemmtilega til að þessi mynd fjallaði um sama efni eða Riddara Hringborðsins. Samt sem áður gætu þær ekki hafa verið ólíkari... Það var nákvæmlega ekkert í söguþræðinum sem gaf til kynna að verið væri að fjalla um sama hlutinn, nema kannski nöfnin því þau voru þau sömu. Hvernig var þessi saga eiginlega? Mig langar virkilega til að kynna mér þetta betur.... ef þið vitið eitthvað um þetta mál þá endilega deiliði því með mér!!!

Jæja nóg í bili
Bless bless Sandra 

p.s. er þetta nógu góð íslenska fyrir þig Árni minn? Ullandi

Athugasemdir

1
Pálína skrifar:
halla malla þa' er alltaf crazzzzyyyyyyyy að gera hjá þér krútta. Höfum enn meira crazy að gera
og plönum útlönd eftir jól VÚHÚ.......

Jæja ætla klára heilsutengda

JÚBERÍJÚBERÍ JÚ
17. október 2006 klukkan 01:52

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Hver er ég?

  • Nafn: Sandra Björg Stefánsdóttir
  • Stađur: Höfn Hornafirđi
  • Atvinna: Verkefnastjóri viđ Háskólasetriđ í Hornafirđi

Innskráningar kubbur